Bara snjóar og snjóar. Skil ekki í þessu veðri hér, þykist alltaf heyra í fuglunum syngja á morgnana þegar ég er önnum kafin í vinnunni að þvo, klæða, gera morgunmat og sprauta eða eitthvað. Hlakka svo til þegar það fer fyrir alvöru að vora. Er orðin svaka spennt að hætta í vinnunni sem er ég orðin frekar þreytt á. Bara dregur mig niður finnst mér að vinna í þessu. Maður er svo hjálparlaus, sumir sjúklingar í heimahjúkrun hafa það svo skítt að maður hefði ekki trúað þessu og aðrir þrífa sig ekki og hirða engu um umhverfi sitt en slíkt fólk er alls staðar til.
Ég er bara ánægð með sjálfa mig og þessa bloggsíðu, ég viðurkenni það að án hjálpar óla bró=rokkara hefði ég ekki náð þessu svona, nú langar mig bara að breyta litunum en ég ætla ekki að gera það alveg strax, búin að fá nóg af þessu html máli í bili. Skil ekki neitt í þessu html og langar það ekki heldur, mér finnst nóg að einhverjir aðrir skilji þetta, góð skoðun.
Ég ætlaði að fá Nínu til að skrifa líka á bloggið en hún hefur engan áhuga á þessu, hún var nefninlega að fá dagbók í gær og hún er með lás, það var algjört skilyrði fyrir Ninu, að það væri lás á henni. Ég sem ætlaði að vera góð að lesa hugsanir hennar í dagbókinni þegar hún er farin að sofa. Verður víst ekki neitt úr þessu. Fór í gær og talaði við skólasálfræðing og fékk það staðfest að kennarinn væri ekki að gera nógu góða hluti. Ánægð með það, það staðfestir okkur náttúrulega í okkar trú og veitir okkur meira sjálfsöryggi varðandi uppeldið,,,,, Vandinn er sá að Nína virðist eiga auðvelt með að læra og leiðist kannski í tíma í skólanum og kennarinn segir að þetta sé athyglisbrestur og að hún sé óhlýðin og svona. Ég er alveg til í að koma á móts við kennarann en hún Fr.Heuwinkel er ekki til í að koma á móti Nínu á nokkurn hátt. Ég ætla bara að gleyma þessu og hlakka til að hún fari að skipta um skóla. Sálfræðingurinn sagði að best væri að Nína færi í annann bekk, samhliða sínum en þá bætti ég því við að við værum að fara að flytja og hann sagði að það væri að vissu leiti gott en auðvitað geta líka fylgt erfiðleikar með flutningum. Sjáum bara hvað setur, amk hlakka ég til að flytja....
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
miðvikudagur, janúar 21, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home