Komin heim
Við erum komin heil á húfi heim til okkar aftur. Við lentum eftir seinkun kl. 23:30 í gærkvöldi og vorum komin heim kl 01 í nótt. Allt í gúddí.
Þetta var mjög vel heppnuð ferð þrátt fyrir að vera stutt. Við fórum í skoðanaferðir um bæinn, samtals þrjár talsins og reyndum að slaka á á ströndinni en það gekk hálf illa sökum mikilla vinda. Það var þvílíkt sandfok að maður sá ekki nema 50 metra frá sér. Nei smá ýkt, en samt frekar óþægilegt að liggja á ströndinni í sínu bikiní og fá sandinn í augun, eyrun og allt. Þannig að við gáfumst upp á því að gera þetta að strandfríi. Sem var hvort eð er ekki meiningin. En Spánverjar eru svo afslappaðir og notalegir i´umgengni, nema hvað það eru mikil læti í þeim. Bara þegar þeir eru að tala þá nánast öskra þeir. Í alvöru, ótrúlega fyndið.
Við vorum á fínu hóteli og nutum þess að vera tvö ein saman, sváfum út og tókum tíma í að slappa af. Skoðuðum mikið og svona en ekki neitt stress. Þetta er æðisleg borg og ég mæli með þessu. Frá Dusseldorf flýgur Air BErlin og eftir tvo tíma er maður kominn. Ég fór héðan kl.6 um morguninn, var komin kl.8 og átti allann daginn og svo í gær fór flugið okkar kl.21 þannig að við áttum líka allan gærdaginn, betra gat það ekki verið.
Ótrúlega fallegur gamall miðbærinn svona kirkjur og söfn og svona.
Setti inn nokkrar myndir, hafið gaman af :-)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home