Vonandi er hún á pillunni!!
Var að setja inn nokkrar myndir, hafið gaman af. Ég setti þær því miður inn í vitlausri röð þannig að tímalega séð er best að skoða þær upp á við, þ.e. byrja á neðstu myndinni og fara upp á við.
Vonandi er hún á pillunni, sagði Nína í kvöld við vorum að horfa á mynd og það var ung prinsessa sem vildi prufa að vera venjuleg stúlka og hún varð ástfangin og fór að gera dodo með óbreyttum vini sínum.... Þá sagði tíu ára dóttir mín þetta, vonandi er hún á pillunni, alveg til að brjálast yfir... Ein sem heldur fyrir augun þegar verið er að kyssast í sjónvarpinu!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home