sunnudagur, október 23, 2005

Mikið að gera þessa helgi

Á laugardaginn var markaður sem gekk vonum framar, ég verð að segja það að hann Alex, er bara svakalegur sölumaður. Þetta er eiginlega fyndið því honum er ekki vel við þessa markaði, alls ekki ef þið skiljið hvað ég á við. En hvað gerir maður ekki fyrir börn sín??? Þau náðu semsagt að hala inn 60 Evrum, sem er bara góður árangur miðað við að þetta voru spil og dót sem Nína var alveg hætt að leika sér við. Það kom blaðamaður og talaði við Nínu, hún sagðist ætla að leggja peningana inn á banka og kaupa sér svo hest fyrir þegar hún er búin að safna nóg. Um að gera að hafa háleit markmið.

Um kvöldið fór ég svo í á fyrsta klúbbfundinn. Sem var bara mjög gaman, þrjár hressar konur mættu og við Marina sem skipulögðu þetta, þannig að við vorum fimm í það heila. Náðum líka mjög vel saman og var bara gaman. Við ætlum að hittast eftir 3 vikur næst og þá kemur í ljós hvort allar mæta en tvær voru ekki sem hafa áhuga á að vera með.

Í dag var saumaklúbbur, við vorum duglegar að borða kræsingar sem Bjarnhildur hafði haft til og gerðum svo nokkur kort, já jólakort, þori varla að segja það því það er svo langt til jóla. Alltaf gaman að hitta þær íslensku og kjafta um daginn og veginn. Þórunn kom með í fyrsta sinn og passaði vel í hópinn. Við þurftum að fara snemma því ég og Alex förum í dansskóla á sunnud.kvöldum kl.18:30. Þurftum að taka bensín á leiðinni og ohhh alveg á síðasta sjens þegar ég kom heim en við náðum á réttum tíma. Voru ekki byrjuð að dansa þannig að allt reddaðist.

Á morgun byrjar svo vinnuvikan, verður stutt og skemmtileg í þetta sinn. Mamma og Þórður koma í heimsókn á fimmtudaginn. Það verður gaman að fá þau. ÉG fékk meira að segja að skipta vinnuhelginni minni sem er nú algjör hátíð.

Óli hvernig er það ertu búinn að fá pakkann?

jæja kæru félagar, ég bið aðheilsa í bili og ætla að flatmaga aðeins fyrir framann imbann :-)

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

það er ekkert of snemmt að fara að gera jólakort, það eru akkúrat 2 mánuðir til jóla og þeir eru mjög fljótir að líða. En hvernig er jólakortatískan í ár?
Ég ætla að fara að byrja á kortunum en er alveg hugmyndalaus
jólakveðjur, Systa :)

9:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters