miðvikudagur, desember 28, 2005

Hátíð í bæ

Alveg merkilegt að ég skuli ekki hafa sett upp jólatréð fyrir jól. Ég er eiginlega ekki búin að jafna mig á áfallinu sem ég varð fyrir útaf sjálfri mér. Ég hef aldrei verið með jól án jólatrés. Þegar við lögðum af stað til tengdamömmu á föstudeginum þá gafst hreinlega ekki tími í að setja upp gervitréð okkar. Í raun ekki svo slæmt því við vorum öll jólin í burtu. Ég hefði bara þurft að setja það fyrr upp, svona á fjórðu í aðventu eða eitthvað, halda þá litlu jólin. Nú nenni ég amk ekki að setja upp tréð þannig að við erum tréslaus í ár.

Við létum stjana við okkur hjá tengdó á aðfangadag og höfðum gaman af jólunum. Ég fékk rosalega marga pakka og margar skemmtilegar bækur, í fylgd með fullorðnum, Krosstré, þýska sakamálasögu og smáskammtafræðibók. Nú er bara að hefja lesturinn, alltaf gaman að fá góða bók í jólagjöf. Við fengum eitt fjölskylduspil, Carcassanne en við erum ekki enn búin að prufa það. Við fórum í Wizzard hjá Eveline og ég tapaði, ég er svo óheppin stundum í þessu spili ég get svarið það. Ég held stundum að ég skilji ekki þetta spil, ég tek bara of mikla sjensa eða of litla, alltaf svo erfitt að vera grimmur við hina með z að ég sjálf næ ekki mínum markmiðum. Hlakka til að fara að spila á Akranesi, kannski kana eða eitthvað annað alveg sama. Það er svo gaman að spila saman..... eða púsla, það finnst mér líka skemmtilegt.

Við mæðgur erum orðnar einar í kotinu, Alex var að leggja af stað til Brussel núna áðan. Hann verður þar til 13. janúar. Ég og Nína förum á föstudaginn til Brussel og verðum þar með Alex yfir áramótin, á hóteli og förum í smá bæjarskoðun og svona. Verður gaman að prufa eitthvað nýtt á áramótunum. Svo förum við Nína 1.jan til Amsterdam en við fljúgum yfir kaupmannahöfn, leggjum af stað kl.17 þannig að það verður bara rólegheit að leggja af stað um 12 leitið frá Brussel, cirka tveggja tíma keyrsla.

Ég er búin að kaupa kínverja og einhverjar litlar sprengjur fyrir Nínu. Hún hefur svo gaman af þessu en er alltaf með hlífðargleraugun, vill það líka sjálf mér finnst það frábært. Ég er mjög ánægð með það. Við verðum bara að finna fínan veitingastað fyrir gamlárs, þar sem hægt er að fá góða nautasteik fyrir prinsessuna á bauninni, alltaf eru þjónar jafn hissa þegar hún biður um medium steikingu.

Vonandi hafið þið öll haft það gott yfir jólatímann og farið með aðgát inn í nýja árið.
Takk fyrir jólakortin sem ég fékk, alltaf finnst mér jafnyndislegt að lesa þær línur.
Á Íslandi verð ég hjá mömmu mestallann tímann, verðum í bandi, ykkar Helga
ps nokkrar nyjar myndir, hafid gaman af

2 Comments:

Blogger Bippi said...

Það er nú gott að þið höfðuð það fínt um jólin...

já, ég held að Nína og Snorri séu alveg á kínverja-aldrinum, allavega er minn maður alveg sjúkur í þetta. Hlífðargleraugu að sjálfsögðu algjört möst.

Hafið það gott á nýju ári og hlakka til að sjá ykkur eftir nokkra daga;)

1:24 e.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Tapa ekki allir nema sá sem vinnur?!? Ég hef alltaf spilað Wizard þannig... en Karen kann að svindla... og er skillful :þ
Við fórum út að borða í gær og Hlynur vildi endilega fá nautakjöt. Fékk þurrasta, well-done-asta nautakjötsstykki sem ég hef á ævinni séð! Karbetlu með og mjög góða grænpiparsósu... hann kláraði kjötið næstum því, elskaði sósuna og borgaði ekki nema 1500 kall fyrir!!! Það var nú allt í lagi þar sem hann var ánægður ;)
Eníhú... okkur hlakkar til að hitta ykkur á morgun :)

1:17 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters