Laufabrauðsgerð
Var á heimilinu í gær. Mér varð svo hugsað til þeirra gömlu góðu daga þegar öll fjölskyldan og Gunna og Adam hittust hjá ömmu Huldu og afa Helga á Melteig 7 til að gera laufabrauð. Munið þið eftir þessu???
Amk sagði ég í gær að amma Hulda hefði verið stolt af mér hefði hún vitað af því hvað ég var dugleg að fletja út í gær. Það er ekki auðvelt, að fletja út þannig að kökurnar verið nógu þunnar. Við Inga Björk vorum í akkorði, hún kom með báða strákana og var í að skera út og hugsa um þá. Þeir voru góðir í eldhúsinu að leika sér á bílateppinu með bíla og legó. Við vorum í þrjá og hálfan tíma, seinasta hálftímann kom svo Alex, Nína og ég að skera út líka þá skot gekk þetta. Mér finnst þær æðislegar. Inga Björk sagði að þetta væru fyrstu jólin hennar sem hún væri með "heilar" laufabrauðskökur með hangikjötinu.
Við vorum með uppskrift fyrir 60 kökur en ég náði 63 og fullt af rest sem ég svo steikti. Frábær árangur ekki satt. Svo þunnar að hægt er að lesa úr biblíunni í gegnum þær, sá ég að væri æskilegt, eða var æskilegt í gamla daga..... Þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þær eru þunnar og stökkar, alveg yndislegar. Vonandi næ ég að halda nokkrum þar til við borðum hangikjötið..... Nína er alveg sjúk í þetta og ég líka. Alex borðar þær af góðri lyst en þegar ég hótaði honum að hann fengi enga ef hann hjálpaði ekki þá sagði hann:,, Allt í lagi". Er þetta ekki svekkjandi???
Setti inn myndir frá leikritinu sem Nína tók þátt í og samtíning og auðvitað af kökunum, góða skemmtun og ekki láta munnvatnið leka á lyklaborðið!!!
Gleymdi alveg að segja að í dag var síðasti vinnudagurinn minn, húrrahh, húrrahh, húrrahhh.....
Já og að Alex var að kaupa sér nýtt keppnishjóla, Stevens, svakalega flott og hraðskreytt, það er öruggt að maður á ekki eftir að sjá hann þegar hann er á flugi á hjólinu, bara svona hvítt og rautt strik fara framhjá sér!!!!


8 Comments:
Já hvort ég man eftir þessu, þ.e.a.s. laufabrauðsgerðinni á Krókatúninu og á Melteignum :)
Til hamingju með að vera hætt í vinnunni og að vera búin að gera þetta líka glæsilega og vonandi líka góða laufabrauð.
Til hamingju með hjólið Alex, þú pantar bara svítu næst þegar þú gistir á hóteli og leggur það í sófann ;)
Takk fyrir það, já ég hugsa að hann geri það í alvöru, taki hjólið í hjónarúmið næst, ef það verður eitthvað næst með hjólið á ferðarlagi!!!
Laufabrauðið er mjög bragðgott, Inga Björk sem var með mér í því, hún sagði að það væri sætara en það sem hún er vön, 1 og 1/2 bolli sykur var í 2 kg uppskriftinni.
Til hamingju með að vera hætt í vinnunni Helga mín!
Þetta eru ótrúlega flott laufabrauð. Við gerum alltaf svoleiðis hjá tengdó.
Mér finnst jóldagatalið ykkar ótrúlega flott, einfalt og flott.
Hafið það nú gott;)
Til hamingju með að vera hætt í vinnunni Helga mín!
Þetta eru ótrúlega flott laufabrauð. Við gerum alltaf svoleiðis hjá tengdó.
Mér finnst jóldagatalið ykkar ótrúlega flott, einfalt og flott.
Hafið það nú gott;)
bara 'i tv'iriti 'i dag.... já það er líka spenna í kring um dagatalið, ég fékk bodýlotion í morgun sem Alex hafði keypt, á morgun er Alex, nína fékk í gær... gaman gaman
Þú ert svo fyndin Inga, ég fór í algjört hláturskast. En ég er´líka ótrúlega glöð að hafa kynnst þér. Mér finnst ótrúlega gott að þú hafir komið og tekið þátt í laufabrauðinu með mér. Mér finnst samt ennþá betra að þú skulir vera svona nísk á kökurnar og að þú skulir fela þær fyrir Seydí.
Til hvers eru eldspýturnar? Til að kveikja í laufabrauðinu? Svo keppni hver er fyrstur að klára heila köku?!?
HAHAHA... það væri nú efni í drykkjuleik (og sérstaklega þar sem að bjórinn er svo ódýr hjá ykkur :þ )
Það er greinilegt að þú veist ekki mikið um laufabrauðsbakstur Óli.
híhíhí
Skrifa ummæli
<< Home