Leikrit í skólanum hennar Nínu
Í dag kom Andrea Bramer í heimsókn en við kynntumst henn í Detmold þegar hún hringdi og bað um að læra með mér íslensku. Svo fór hún til Íslands, í tvö ár, annað í samfélagsþjónustu frá EFTA eða eitthvað og seinna árið sem hún var á Íslandi fór hún að vinna hjá Hrafnistu í Reykjavík og var í háskólanum í íslenskunámi fyrir útlendinga. Hún er núna að fara í nám hér í Þýskanlandi en stefnan er aftur tekin á Ísland eftir ókomin ár.
Við fórum í dag á leikritið sem Nína er búin að vera að æfa í skólanum núna í nokkra mánuði. Það var rosalega gaman, hljómsveit, örugglega 20 krakkar sem tóku þátt ásamt tæknimönnum. Það var fullur salurinn og allir höfðu greinilega gaman af þessu. Ég tók nokkrar myndir, skelli þeim inn við tækifæri. Alex tók allt leikritið upp á video en það tók 1 klst og 15 mín. Næsta og síðasta sýning er á föstudaginn kl.17.
Sá einhver auglýsinguna í fréttablaðinu í dag? Þar sem ég auglýsti vonandi eftir Au-pair. Núna er tíminn byrjaður sem má hringja en enginn hefur hringt. Spennandi.... ef ekki neitt gerist þá lýsi ég mig sigraða í þessu máli. Enda skiptir það engu máli hvort eð er, ég bauðst til að gera þetta og er nú búin að því.
Bless í bili, læt kannski heyra í mér á morgun, er á kvöldvakt þessa viku, seinasta vinnuvikan mín, ohhhhh en frábært. Svo er ég reyndar að vinna um helgina og fæ hóp af Íslendingum í laufabrauðsgerð... gaman, gaman.


2 Comments:
Hvar sást þú hana, á netinu? Já takk sömuleiðis fyrir síðast og við sjáumst í laufabrauði...
Af hverju ætli fólk vilji bara stelpur sem aupair??
Ég þekki svo marga frábæra stráka sem myndu örugglega standa sig betur en margar stelpur;)
En annars bara góða skemmtun á aðventunni og skilaðu góðri kveðju til leikkonunnar;)
Skrifa ummæli
<< Home