fimmtudagur, maí 11, 2006

Afmæli mitt

Var í gær, ég þakka fyrir allar þær mörgu kveðjur sem ég fékk, símtöl, sms, vefbréf og komment, takk allir saman.

Ég átti mjög góðan dag og naut þess að láta stjana við mig (gerist of sjaldan)! Borðaði mjög góða jarðaberjaköku (nú þarf ég að fara að gera marmelaði) og fékk svo uppáhaldsmatinn minn í kvöldmat, ferskan aspars með kartöflum, skinku og hollandais sósu. Ég sleppti hvítvíninu en Alex naut vínsins með! Æðislegur matur, mæli með honum!

Setti inn nokkrar myndir frá gærdeginum, það sést vonandi hvað það var æðislegt veður, byrjar vel nýja lífsárið mitt eins og Þjóðverjar segja. Læt þetta duga í dag.

6 Comments:

Blogger Bippi said...

Þú lítur ótrúlega vel út Hlega mín;)

11:03 f.h.  
Blogger Bippi said...

Helga mín;) Ég pikka ótrúlega oft inn Hlega.....?

11:03 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir það, þökk sé andlitslyftingu og fitusogi, HAHAHA
nei smá djók
Kv.Helga

11:56 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með daginn Helga mín, þó seint sé. Ég held ég hafi meira að segja munað eftir honum þann 10.

12:58 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er búin að vera á næturvöktum og þá renna dagarnir saman en ég mundi þetta 10.maí og hugsaði til þín. Man afmælisdaginn þinn frá því í gamla daga! En til hamingju með daginn;)
Kv. Rannveig

5:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir þið eruð nú alveg ómetanleg að muna þetta svona!

kveðja
Helga

8:01 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters