laugardagur, júní 10, 2006

útisund

Alveg geggjað veður þessa dagana. Eiginlega of heitt fyrir mig, bjúg á fótum, svitakóf og svo framvegis. En ég ætla nú ekki að kvarta of mikið því ég get bara skotist inn í húsið mitt því það er kælandi. Það er spáð 30 stigum um helgina og við erum núna á leiðinni í útisund. Það er nóg að gera þessa helgi.

Nína var með í frumsýningu á Tabaluga í skólanum sínum í gær. Hún er í kór og Alex fór að horfa á og sagði að það hefði verið mjög gaman. Ég ætla að fara í dag, ég var á óléttunámskeiði í gær og komst því ekki.

Á morgun er svo Þríþrautarmót hjá Alex í Bocholt, það verður gaman að sjá hvernig honum gengur þar, í 30 stiga hita og að synda í 18 stiga köldu vatni. úfffff..... Ég fer því miður ekki að horfa á hann því það er opið hús hér á gjörgæsludeild nýbura og fæðingargangi og ég er svo spennt að fara þangað. Alex ætlar að reyna að vera duglegur í þríþrautinni og koma líka á sjúkrahúsið að skoða.

Í næstu viku er svo frídagur á fimmtud. og föstudegi þannig að það er stutt skólavika hjá Nínu. Öll próf eru búin þannig að núna verður vonandi bara gaman í skólanum það sem eftir er, alls átta skóladagar.

Ef ég fylgist rétt með þá er að styttast í skólanum á Íslandi líka, mamma er á leið til Mílanó eftir nokkra daga, þær fara þangað saman nokkrar skólasystur á námskeið og að hafa gaman saman. Bara vonandi að það verði ekki of heitt hjá þeim. Loksins þegar sumarið ákvað að koma þá kom það með prompi og pragt.

Já og var ekki gaman að horfa á byrjunina á heimsmeistarakeppninni í gær. Ágætisleikur í dag líka, maður verður nú eins og fótbolti í laginu ef maður ætlar að fylgjast með öllum leikjunum. Það var ótrúlega skemmtileg stemming hjá okkur í bænum í gær. Ekki hræða á götum og í hverju götuhorni heyrðust fagnaðarlæti þegar var skorað. Margir barir voru með stóra skjái og tilboð í gangi þannig að það var ótrúlega skemmtileg stemming á mörgun stöðum.

7 Comments:

Blogger Bippi said...

Síðasti dagurinn hjá Snorra var á fimmtudaginn. Hann er ekkert smá ánægður með að vera kominn í frí.

Hérna heima er bara skítaveður, kuldi og rok. Ég vona samt að hann haldist þurr því hljomsveitin á að spila við bryggjuna í dag:o/

Góða skemmtun á leikritinu og á Spítalanum;)

12:06 e.h.  
Blogger Helga said...

Takk fyrir Heiðrún mín, það verður gaman hjá ykkur úti á Spáni, góða skemmtun til ykkar Snorra og restinni af sveitinni.

Það verður spennandi að fá ferðarsöguna þegar þið komið heim aftur.

Farið varlega og gangi ykkur vel.

5:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá en gaman, það er nóg að gera hjá ykkur fjölskyldunni. Góða skemmtun og gangi ykkur vel

B.kv. Þóra

6:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Væri alveg til í að koma með þér að skoða nýburagjörgæsluna..hvernig ætli svoleiðis sé í útlöndum?
kv
Sigga vökuhjúkka, sem hefur bara séð síns eigins gjögæslu:)

12:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Helga, ákvað að kíjka á ykkur og greinilega langt síðan ég hef séð ykkur því Nína er orðin svo STÓR. Það er allt gott að frétta að norðan hjá mér og mínu. Guðrún að verða alltof fullorðin og Kolbrún alltaf sama skottan. Við höfum það sem sagt fínt. Vonandi hafið þið það líka gott og við sjámst vonandi áður en langt um líður. kv. solla

12:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir Þóra mín, já það er víst óhætt að segja að það sé nóg að gera, kannski of mikið ef eitthvað er. Ég svaf ansi vel á sófanum í gær þrátt fyrir annríki og var vakin í nótt af mínum ektamanni vegna hávaða! Það var ég sem hraut svona!!!

Sigga þú ert velkomin, hvenær sem er... segi ég sem veit ekkert hvað ég er að tala um. En þeir eru með hæstu gjörgæsluþjónustu hér á okkar bæjarsjúkrahúsi þannig að maður er í góðum höndum sem er mikilvægt upp á tilfinninguna.

Solla gaman að þú skulir kíkja, já kannski við náum að sjást bráðlega. Það fer að styttast í að við komum á klakann og þá er nú styttra að hittast. Hafið það öll sem best elskurnar, kveðja úr steikinni ykkar Helga

9:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég á nú fulla samúð með þér Helga mín! Þessi hitamolla er nú ekki gerð fyrir mikið óléttar konur. Það er allt að bráðna hérna í London og ég með, best að reyna að hreyfa sig sem minnst og borða fullt af klakapinnum! Ég fraus þessa fínu pinna úr ananassafa og það er alveg að bjarga mér. Vona að þú náir að kæla þig í garðinum.

Baráttukveðjur!

Svana x x

1:06 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters