fimmtudagur, janúar 22, 2004

Hæ hæ allir saman, takk fyrir góðar móttökur, þetta peppar mann upp ef má nota svona mál??? Já Elva frænka, til hamingju með daginn í gær, góð myndin af þér hlaupandi!!! Kristleifur takk fyrir hrósið og Heiðrún takk fyrir að linka á mig.... Já og svo við ég þakka fjölskyldu minni, Óla, Þóru, Atla og mömmu. Takk fólk...snökt, snökt.... Bara svona til að láta ykkur vita af því þá var mamma að bjóða í hús í gær og í dag fær hún að vita hvort því verði hafnað eða því verði tekið, sem væri æðislegt. Þetta hús er í Jörundarholti, ég segi ekki meir fyrr en ég er búin að fá staðfestar fréttir um hvort hún hafi fengið húsið.

Áðan var ég niðri í bæ á hjóli þar sem ég fór á vinnufund. Það er alltaf sama stressið í vinnunni en ég er hætt að láta það fara í mig, ég er hvort eð er að fara að hætta þarna. Ég var að skipta einni vinnuhelgi, þ.e. helgin 6.-7. feb. þá á að fara á Þorrablót með Íslendingafélaginu í Hamborg. Við ætlum að fjölmenna með Lúlla og Grétu sem eru frá Húsavík en eru eins og er búsett í Höxter. En hvað þetta er gaman að vera að dúlla sér í þessu dóti. Mér finnst nú samt ofaukið með því að hafa tvo tölvuskjái fyrir eina tölvu þar sem eru þrjár tölvur í einu herbergi, hhhmmmm, Bippi, bara mín skoðun, no personal.

Já og svo kemur Alex heim á eftir, hann var í London í gær, bara svona þið vitið, á vegum vinnunnar..... Svaka gaman að fá hann heim á fimmtudegi, það er bara langt helgarfrí,,jjjúuuuu en verst að ég er að vinna um helgina, maður ætti samt að ná að taka aðeins til saman eða eitthvað slíkt....

En ég er búin að minnka stafina, hvað finnst ykkur um það? Eru þeir of litlir, ég get vel ímyndað mér að mamma segi að þeir séu of litlir en kannski að biðja hina um álit.... Mamma ekki neitt persónulegt.

Þóra ég fékk bréfið frá þér í dag, takk fyrir hringinn....hann passar, er ekki búin að máta en mér sýnist hann vera af réttri stærð.

Jæja krúttin mín, ég ætla að láta þetta duga í bili, Daniel benti mér á flutningafyrirtækjavef á netinu sem gera tilboð í flutninga, best að kynna sér þetta eitthvað nánar.

Lifið í lukku en ekki í krukku

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters