Helgin
Ohh alltaf gaman þegar það er helgi. Af hverju eiginlega? Ég meina ekki á ég frí frá vinnunni. Sennilega í mínu tilfelli af því að þá er fjölskyldan meira saman en í vikunni. En ég er ekki viss.
Á morgun förum við á sveitabæinn þar sem Nína er í reiðtíma. Það er opin hús hjá henni Anne Laue sem er bara með íslenska hesta. Nína á að sýna einhverjar kúnstir. Það verður örugglega gaman. Ég bakaði köku til að fara með. Fólk getur svo keypt sér kökusneið og ég geri það sennilega líka.
Þessa viku er búið að vera ansi mikið stuð niðri í bæ hjá okkur. Það er hvítasunnuvikan hér heitir það en þá er á hverjum degi eitthvað prógramm fyrir börnin frá 15-18 og svo eru rokktónleikar frá 19. Hægt að kaupa sér bjór á 1,20 evrur og franskar og bratwurst og eitthvað svona feitt og gott. Við vorum að spá í að kíkja í kvöld en í kvöld er aðal kvöldið..... Málið er bara að það er svo troðið þarna að maður er hálftíma að kaupa sér bjór og hálftíma að drekka hann þannig að það er best að vera bara við barinn, hahaha....
Af hverju er ekki svona á Íslandi spyr ég bara, allir í gúddí, svo bara búið kl.23, og allir fara glaðir og sælir heim að sofa???? Never væri svona hægt á Íslandi, eiginlega mjög leiðinlegt að mínu mati. Kannski er ég bara orðin of gömul, eða þýsk????
Í gær kom Manuela samstarfskona mín til mín í freyðivín. Við notum vinnubílinn saman, ég á morgnana og hún á kvöldin. Ég náði í hana þegar hún var að fara að hjóla heim til sín og sagði að hún ætti að drekka með mér eitt freyðivínsglas, sem hún tók vel í. Við sátum í eitthvað klukkutíma og vorum að ræða um daginn og veginn, svo kom Alex og hjálpaði okkur með flöskuna!
Nína krútt er komin með blogg, endilega kíkja á hana...
www.ninae.blogspot.com
bestu kveðjur og góða helgi....


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home