miðvikudagur, maí 25, 2005

Hversdagsleikinn

Kannski ekki alveg hversdagsleikinn en samt lífið er komið í fastar skorður síðan við komum heim frá Spáni. Ég er á kvöldvöktum þessa viku og er að vinna um helgina. Við fáum heimsókn á morgun en það er frídagur hér hjá okkur, edsj edsj...


Ég fékk ekki þessa vinnu sem ég sótti um um daginn, því miður en það kemur að því að ég finn það eina rétta. Þolinmæðin þrautir allar vinnur ekki satt, það hefur aldrei verið mín sterka hlið, þolinmæði. En ég hef aðra kosti sem vega uppi á móti því að vera óþolinmóð.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters