þriðjudagur, júní 14, 2005

sönglagablað

Hæ, ótrúlega er ég eitthvað leiðinleg að skrifa ekki meira en þetta. Það mætti halda að ég hefði eitthvað mikilvægara að gera en að skrifa á bloggið mitt?

Ég er búin að vera mjög þreytt, pirruð og áhugalaus síðustu daga og það skýrir vonandi það að ég skrifi ekki mikið. Ekkert alvarlegt, og já ég var á túr þannig að það er það ekki!!! En mér finnst ótrúlega leiðinlegt að koma ekki í brúðkaupið hennar Siggu. :-(

Ég er ekki búin að fara neitt út að ganga eða skokka síðan, æ dónt nóv venn.... ótrúleg lægð í gangi.

En núna er ég búin að prenta út ljósmyndir í prentaranum okkar fyrir Nínu en það er verið að undirbúa útskriftarbók fyrir krakkana í bekknum hennar Nínu. Svaka prógramm í gangi útaf því að þau eru öll að fara í annann skóla. Við erum svaka spennt að fara að skoða nýja skólann en það er á fimmtud. kl.18.

Svo er ég búin að vera að vinna að sönglagablaði sem ég ætla með í íslendingapartý um helgina hjá Svölu en Svala er úr Leirásveit, ntt. leirágörðum. Ótrúleg tilviljun, þannig að við erum næstum því systur!!! Nei smá djók en við töluðum heillengi í síma um daginn og það var ótrúlega fyndið. Alveg svona já hvað er að frétta af Ragnheiði og Ásgeiri og svona..... Já minnir mig á að ég ætlaði endilega að skrifa Ásgeiri og Önnu Leif email því Nínu langar svoooo í heimsókn í íslenska sveit þegar hún kemur í sumar!!!

Já áfram með sönglagablaðið....
þýtur í laufi
ó jósep jósep
vertu til er vorið kallar á þig
viltu með mér vaka í nótt
máninn fullur fer um geiminn
við varðeldana voru skátar
fram í heiðanna ró


hvað dettur ykkur í hug fleira sem væri gaman að syngja úti í garði í yfir þrjátíu stiga hita á 18 júní í Þýskalandi, til að fagna saman þjóðhátíðardegi íslendinga?
kannski hæ hó jibbýjei og jibbýi jei?
nei án gríns okkur vantar einhver ómissandi lög!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters