Tjaldútileiga
Nína og vinkona hennar, hún Marja ætla að sofa úti í garði í nótt. Þær eru búnar að setja upp tjaldið mitt, sem er örugglega 15 ára eða eitthvað (alex var byggingarstjórinn) og komnar með vindsæng og sængurfötin sín út og ætla að horfa á Mr.Incredible og fara svo út í tjald að sofa.
Við erum að fara út. Þannig að við óskum þeim bara góða skemmtun!!! Já ótrúlega óábyrgðir foreldrar. Nei þetta eru svo duglegar og góðar stelpur. Eiga svo vel saman, eru hlægjandi mest allann tímann sem þær eru saman, það á eftir að verða svo gaman hjá þeim. Snakk og sprite og dvd, hefur maður aðrar óskir þegar maður er tíu ára og er að fara að sofa í tjaldi með bestu vinkonu sinni?
Ég man nú hvað það var yndislegt að sofa í tjaldi hérna einu sinni. Það er bara svol. langt síðan ég svaf seinast í tjaldi. Jú ég held ég muni hvar það var, úti í garði hjá mömmu þegar það var fjölskyldumatur hjá Valla og Dóru. Það var fyrir 5 árum síðan. Eða svaf ég ekki í tjaldinu? Kannski bara Alex? Ohh ég man þetta ekki. En það er alveg víst að áður en ég fer í mína næstu tjaldútileigu þá verðum við að fá okkur tjald sem maður kemst í hálfvegis uppréttri stöðu inn. Tjaldið mitt gamla er nefninlega kúlutjald og það er ekki gaman að skríða á fjórum fótum inn í tjaldið og troðast í gegnum LITLA opið á tjaldinu!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home