þriðjudagur, október 25, 2005

Jólakortatískan í ár

Ég veit ekki hver hún er. Ég fæ alltaf svo falleg heimatilbúin jólakort og nota hugmyndir þaðan. Svo er maður kannski aðeins útúr því maður er í Þýskalandi þannig að það tekur enginn eftir því að ég nota sömu hugmyndir og kortin voru með sem ég fékk. Það er ekki heldur slæmt en ég er ákaflega hrifin af kortum sem eru með útklipptum sneplum (semsagt pappír annar en sá sem er í kortinu) jafnvel tvenns konar, límt einhvernveginn ofan á hvort annað, hvort sem er skakkt eða lítið á stórt og svo í þrívíddarlímtækni með gulllímmiða sem ég er ákaflega hrifin af. Þóra systir mín fór á námskeið hjá Blómavali í Reykjavík í fyrra fyrir jólin og hún gerði rosalega flott kort, með vír skrauti og svona þrívíddarlímtækni.

Svo hef ég líka fengið kort sem eru útklippt fílt efni sem jólatré eða jólasvein og litað með gulli eða límt fílthúfa eða slíkt á. Eða bútasaumsefni sem hefur verið klippt niður, þá jólamyndir og límdar á kortin. Það er allt til. Mér finnst bara umhugsunarvert að heimagerð kort eru töluvert dýrari en önnur hefðbundin kort, ég held að þetta hafi ekki verið svona áður. En það breytir því ekki að ég held þessari hefð minni áfram, hef líka mjög gaman af þessu. Þetta er engin kvöð eða slíkt sem ýtir mér út í þessa framleiðslu, enda ekki um verulegt magn að ræða, hahaha.

Góða skemmtun við að skreyta jólakort í október.

Næst er það þá baksturinn, nei ég segi svona.....

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Góður.....hlakka til að fá kortið frá ykkur...þ.e.a.s. ef ég er ennþá á listanum;)

Góða skemmtun í jólaundirbúningnum. Ég kemst heldur ekki hjá jólafílingnum því ég er byrjuð að æfa jólalög með hljómsveitinni. Jólatónleikarnir eru 1. í aðventu sem er 27. nóv. þannig að við verðum að geta spilað lögin almennilega þá.

Ég verð örugglega komin með ógeð á jólalögum í desember;)

3:31 e.h.  
Blogger Helga said...

Ohh vildi að ég gæti komið á tónleikana. Það verður gaman í undirbúningnum en þú verður örugglega fegin að þurfa ekki að æfa lögin lengur efn að tónleikunum.

3:57 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters