fimmtudagur, desember 08, 2005

Jóla hvað

Jæja nú er aldeilis orðið jólalegt. Auðvitað ekki eins og heima með öllum útiljósunum og því. En samt, nokkur hús með seríur í gluggunum hjá sér og svona. Frétti af því hjá vinkonu minni að það hefði verið umfjöllun í sjónvarpinu um mestu skreytinguna í öllu Þýskalandi eða eitthvað álíka en það var svo mikil birta sem kom af öllu skrautinu, fígúrur í garðinum, ljósasería á húsinu og svo fram eftir götunum að hann slökkti á heila klabbinu kl.22. Nágrannarnir voru svo fegnir því, þeim fannst þetta of mikil birta svona á kvöldin og nóttunni. En þessi náungi sagði að rafmagnsnotkunin væri sú sama bara fyrir desember eins og að vera með frystikistu í gangi allt árið!!! Mér varð nú bara hugsað til þeirra miklu ljósa oft á Íslenskum húsum. Ekki get ég ímyndað mér að nokkur hugsi þar um aukna rafmagnsnotkun útaf jólaljósum, hvað haldið þið?

Í dag byrjar jólamarkaðurinn í bænum okkar, hann er bara frá fimmtudegi fram á sunnudag, mjög lítill og nettur en samt gaman að ganga hann og skoða allt sem er til boða í litlu tréhúsunum sem búið er að stilla upp. Þar er hægt að kaupa jólaglögg, punsch, bratwurst, franskar, alls kyns föndur vörur, allt frá smíðuðum hlutum, keramik, sultum og niður í smákökur, eða jólakex eins og Nína segir. Kannski finnur maður þar eina eða aðra jólagjöf, það væri nú gaman. Mér finnst alltaf svo gaman að gefa föndurhluti, kannski finnst fólki ekki gaman að fá það en þá getur það bara gefið mér það til baka, híhí....

Jæja ég bið ykkur vel að lifa og skemmtið ykkur vel á jólatímanum

5 Comments:

Blogger Bippi said...

Ég pæli ekkert í rafmagnsreikningum því ég er svo fegin að fá smá birtu í skammdeginu;)

Guði sé lof fyrir jólaseríur og kertaljós!!

2:22 e.h.  
Blogger Helga said...

Mér finnst líka alveg ómissandi að vera með ljós en það er allt í lagi að hugsa útí kostaðinn finnst mér. Mér finnst bara mikilvægt að vita í hvað fóru allir peningarnir, þeir klárast hvort eð er en það er merkilegt að fylgjast með því hvert þeir fara.

Já Þóra þetta er rétt skrifað, húrrraaahhh, smá grín

9:00 e.h.  
Blogger Bippi said...

Helga mín, ertu ekki búin að vera allt of lengi þarna úti í Þýskalandi......nei, nei, ég segi bara svona;)

Auðvitað er gott að hugsa um peninga en ég reyni samt að hugsa sem minnst um þá því mér finnst það svo hryllilega leiðinlegt. Mér dytti aldrei til hugar að fara mæla það út hvað kostar að vera með þessar örfáu seríur sem ég hengi upp. Sorrý, mér finnst það bara fáranlegt.

En gleðilega aðventu í peningamælingum;)

1:11 e.h.  
Blogger Bippi said...

Já, en ég var bara að tala um þessar nokkru seríur sem að ég læt upp en ekki hjá einhverri konu.

Mér dettur ekki hug að reikna minn kostnað. Það finnst mér fáranlegt.

Annars var þetta nú bara mest í gríni sko en ég gleymi að húmor festist ekki alltaf á prenti.

Ég ætla að biðja þig Helga að gleyma ekki þínum frábæra húmor þarna úti í Þýskalandi;)

Get ekki beðið eftir að fá þig heim....

5:13 e.h.  
Blogger Helga said...

Ég er nú ekki heldur að spá í hvað mínar nokkrar seríur eyða af rafmagni en áður en ég væri með garðinn fullan og húsið líka að utan skreytt með ljósum mundi ég eflaust hugsa útí eyðsluna. Ég fékk það í vöggugjöf að vera varkár í peningaeyðslu, það hefur ekki neitt með þýskalandsdvöl mína að gera. Hef alltaf verið svona. :-)

2:08 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters