miðvikudagur, desember 14, 2005

Próf, próf, próf

Já það er meira að gera hjá sumum en öðrum. Mamman liggur í sæluvímu að vera loksins hætt í vinnunni og getur einbeitt sér að öllu og engu sem hún gerir frekar þessa dagana. Eftir að hafa verið svo dugleg að baka smákökur, skreyta, gera jólakort og fleira sem hver húsmóðir gerir með gleði fyrir jól ekki satt. Ekki að ég sé að hæla mér, kannski ég ætti að gera það, nei það er ekki viðeigandi. Amk vildi ég koma því að, að ég hef það mjög gott þessa dagana.

Nína hins vegar er á fullu í skólanum eins og örugglega allir námsmenn (ég ætti nú líka að vera að læra á fullu) , próftími fyrir jól, skilatími verkefna og bara venjulegt í skólanum fyrir jólin. Hún er búin að fara í þrjú próf á mjög stuttum tíma núna, ensku, líffræði, reikning og á morgun er þýskupróf. Sem betur fer er Nína ekki sá persónuleiki sem gerir sér of mikið mál úr hlutunum eða er að stressa sig á einhverju. Ef eitthvað er stressandi þá er það helst að horfa á spennu í þáttum í sjónvarpinu eða þegar lítil börn eru að leika með dótið hennar, en annað truflar hana ekki mikið.

Í þessari viku fengu þau svo enskuprófið til baka. Nínu gekk vel en það gekk ekki öllum vel, 1 er besta einkunnin og 6 er lélegasta sem hægt er að fá. Það voru 6 með 1, 9 með 2, 11 með 3, 5 sem voru með 4. Einn var veikur. Ein stelpa sem situr nálægt Nínu fékk 4 og fór strax að gráta því hún færi í straf heima hjá sér. Mætti ekki fara út í nokkra daga og fengi refsingu fyrir að gera ekki betur á prófinu. Ég spurði Nínu hvað hún myndi gera ef við værum svona við hana ef henni gengi illa. Hún sagði, ég mundi sjá til þess að ég kæmist fljótt að heiman! Svo stuttu seinna sagði hún að hún væri svo glöð að eiga mig sem mömmu og Alex sem pabba. Reddaði vikunni!!! Ég sagði til baka að við værum líka svo glöð að eiga hana. Nína sagði svo líka að henni fyndist alveg óþarfi að refsa börnum ef þeim gengur illa því það væri alveg nóg refsing að ganga illa! Látum þetta vera lokaorðin aðeins tíu dögum fyrir jól.

7 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Mér finnst frábært að þú ert komin í frí og Helga mín njóttu þess bara. Aðventan er svo skemmtilegur og stuttur tími, sem fólk á að nota ef mögulegt er.

Ef smákökurnar klárast, þá hefur þú tíma til að baka aftur fyrir jól :)

Sumir þurftu að gera það (baka sömu tegundir 2svar fyrir jól)í gamla daga, sérstaklega þegar sumir bjuggu í kjallaranum á Reynigrundinni ;)

9:49 e.h.  
Blogger Helga said...

Sei nó mor, ég var ekki EIN að þessu, spurðu bara Kiddu, Þórhildi og fleiri, það voru allir í þessu samsæri en það skrýtna er að ég hef ekki borðað loftkökur síðan í þá daga.

9:08 f.h.  
Blogger Bippi said...

Þið eruð sko pottþétt frábærir foreldrar!!

Þegar að ég les um skólann hjá Nínu líður mér oft eins og hún sé 17 ára eða eitthvað en ekki 10!!

En fá allir foreldrar að vita einkunnir hinna í bekknum??

12:26 e.h.  
Blogger Helga said...

Kennararnir segja alltaf krökkunum hvernig útkoman úr prófum var og sumir skrifa það hjá sér en eflaust ekki allir þannig að foreldrar fá kannski ekki alltaf að vita heildarútkomuna.

Já mér finnst líka mjög mikið álag á krökkum hér í skólanum og þau oft á mörkunum að bugast en gera það ekki.

Einn nemandi þarf um áramót að fara eitt skólastig niður því hann hefur ekki staðið sig nógu vel! Þetta er samt bara liggur við venjulegt. Eflaust áfall þegar kennarinn segir það en oft vilja foreldrar þetta líka og krökkunum líður svo betur í nýja skólanum því þar standa þau sig námslega betur og þá líður þeim líka betur.

1:11 e.h.  
Blogger Helga said...

Já þetta er rosalegt hérna með þessar ákvarðanir sem eru núna í þinginu. Að eingöngu kennarar fái að ráða í hvaða skóla krakkarnir fara. Þetta er algjör stéttaskipting, það er alveg rétt hjá þe´r Inga..... Mjög skrýtið að koma því svona snemma inn hjá krökkum, tíu ára...

5:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Úff talandi um skólakerfi..............Gott að vera komin heim.

kV. Lú

12:00 f.h.  
Blogger Helga said...

Já þessu trúi ég

8:07 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters