miðvikudagur, janúar 04, 2006

Gleðilegt árið 2006

Takk fyrir allt gamalt.


Nú stendur maður í stórræðum þetta árið. Það verður gaman að sjá hvað árið 2006 á eftir að færa í skauti sér. Húsnæðisbyggingar og flutningur til Íslands, spurning hvort maður nái því seint á árinu eða snemma á næsta ári.

Við héldum upp á áramótin í Brussel og höfðum það fínt. Ég og Nína erum búnar að vera á Akranesi síðan um miðnætti aðfararnóttar 2.jan og búnar að hitta alla fjölskylduna en það var fjölskyldupartý 2.jan og frábært að allir nema Alex og Bergþóra dóttir Ernu og Halla komust ekki. Geri aðrir betur með einn dag í fyrirvara. Það var gaman að hitta kærustuna hans Óla bróður og kærustuna hans Óla frænda. Það var svona það nýjasta í sambandi við fjölskyldumeðlimina.

Læt þetta duga, það er eitthvað klikk á tölvunni hennar mömmu hér þannig að það er ekki hægt að birta allt sem maður reynir að blogga. Frekar fúlt. Reyni á þetta.... Nína sefur á sínu græna eyra, kveðja til ykkar frá Helgu

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilegt ár, takk fyrir allt og rúmlega það.
Munur fyrir þig að fá að vera í blíðuni heima á Íslandi

Kveðja frá Húsavík Gréta og Lúlli

12:07 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters