þriðjudagur, mars 07, 2006

Nína slösuð

Nína náði að slasast aðeins í skólanum í gær. Rakst með fingurinn á vinstri hendi utan í borðið sitt og brákaði sig. Hún var svo aum í þessu að við drifum okkur til læknis og þá fékk hún þessar líka svakalegu umbúðir. En það hjálpar og í dag tökum við umbúðirnar af og þá kemst hún vonandi í reiðtíma.

Í dag er rosalega fallegt veður, sól á himni og varla ský að sjá en það var aftur alhvítt þegar við vöknuðum í morgun.

Í gærkvöldi fór ég út að borða með fyrrverandi samstarfskonum mínum, mikið lifandi er ég fegin að vera ekki lengur í þessari vinnu, jibbýýý´.......

3 Comments:

Blogger Gunnur said...

Ég er greinilega ekki með á nótunum hérna á kafi í snjósköflum... Ólétta kona!!! Til hamingju Helga mín, og þið öll! Dásamlegt!
Var það annars ekki bara í fyrra eða kannski fyrir tveimur árum sem þið voruð á Einigrundinni með Nínu nýfædda... Ég man það allavega eins og það hafi gerst í gær hehe

10:34 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Vá enn óheppin, en svakalegar umbúðir eru þetta, vonandi er ekki mikill sársauki. Já það er fínt að þú ert hætt í þessari vinnu :)

Í dag fæ ég að vita (vonandi) hvort bærinn borgar vextina.Þetta þarf ég að blogga um.

Bestu kveðjur til ykkar

10:55 f.h.  
Blogger Helga said...

Já það er nóg að gerast á heimilinu. Ég er líka ekki nógu dugleg að blogga um bumbuna, mér finnst það svo óviðeigandi svona á almenningssíðu... eða þannig.

Með Nínu það er allt orðið í lagi núna, var bara smá meiðsl í skólanum en það er alltaf gott fyrir sálina að fá stórar umbúðir. Já hún Nína litla er bráðum 11 ára.... tíminn líður.

Mamma vonandi stendur bærinn með ykkur og borgar vextina, þetta voru nú einu sinni mistök af þeirra hálfu. Annars er bara lögsókn, ég þekki góðan lögfræðing, híhí

1:28 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters