föstudagur, mars 03, 2006

Snjór og foreldrafundur

Í dag er annar dagurinn í röð sem við vöknum þar sem jörð er hvít. Í gær vaknaði ég við einhverja skruðninga kl.5:30. Ég þurfti dágóðan tíma til að átta mig á því hvaðan hljóðið kæmi. Fyrst hélt ég að það kæmi úr húsinu okkar en eftir góða stund varð mér ljóst að hljóðið kom að utan, já fyrir utan húsið okkar. Hvað haldið þið?? Nágrannarnir mættir út með skóflu og salt í poka til að moka þessa 50 millimetra af snjó af gangstéttinni. Klukkan hálf sex að morgni til.... ég hallaði augunum aftur og sofnaði í smá stund værum svefni.....

Nína er mjög glöð að það sé snjór í smá stund á morgnana, hún fer strax eftir morgunmat út með kúst og sópar snjóinn af gangstéttinni fyrir framan húsið okkar, ægilega dugleg stelpa. Svo hjólar hún í snjónum í skólann en hún er sirka 15 mínútur á fullu á hjólinu í skólann sinn.

Í gær var foreldrafundur útaf því að nú þurfa krakkarnir að velja annað útlent tungumál, það er hægt að velja latínu eða frönsku og þá byrja þau í næsta bekk, 6.bekk. Þetta er nú meira málið hjá sumum. Það er nú ekki að spyrja að því, þetta er líka ekki gert auðvelt fyrir manni. Þeir krakkar sem eru ekki nógu öruggir í þessu skólaformi, þ.e. gætu þurft að skipta um skólaform, verða að velja frönsku því annars komast þeir ekki inn í annað skólaform eða skólarnir geta neitað að taka krakkana inn í skólann. Þeir sem eiga auðvelt með að læra, þeim er ráðlagt að velja latínu þar sem þeir geta svo líka valið frönsku í 9.bekk og fara þá á hraðleið og eru þá í 11.bekk komnir jafn langt í frönsku og þeir sem velja frönsku í 6.bekk. Sérstakt ekki satt?? Það var mikil ólga í foreldrum, sumir komu með athugasemdir eins og það að þetta væri nú ansi mikið fyrir krakkana, þeir hefðu margir hverjir nóg með námið eins og það væri í dag.... við því sagði skólastjórinn já þið völduð þetta skólaform og þurfið að vinna úr því í dag. Eða eitthvað á þá leið. Vissulega er þetta ekki auðvelt fyrir krakkana en það sem stjórnmálamenn ákveða þýðir lítið að vera að æsa sig við skólastjórann útaf, eða hvað segið þið? Ég vil endilega að Nína velji Latínu, hún er undirstaða svo margra tungumála og ég tala nú ekki um ef Nína verður dýralæknir sem er á döfinni þá er það mjög góð undirstaða. Nína er hins vegar að velta sér svo mikið upp úr því hvort það sé kennd latína á Íslandi því við erum jú á næsta skólaári að fara að flytja heim. Þar sem það er einungis kennt í MR þá finnst henni það vera tilgangslaust að byrja í latínu vitandi það að hún haldi ekki áfram í því á Íslandi. Ekki auðvelt val.....

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það verður aldeilis viðbrigði fyrir Nínu að fara inn í Íslenskt skólakerfi, er hún ekki langt á undan krökkum á sínum aldri, þá meina ég miðað við hvar íslenskir krakkar eru staddir námslega séð?

kveðja úr snjónum í Árósum

9:22 f.h.  
Blogger Rokkarinn said...

ÓMG hvað þetta er spez! Auðvitað er þetta voðalega 'sniðugt' að byrja snemma á nýju tungumáli þar sem að skv. vitsmunaþroska hennar meðtekur hún tungumálið í stað þess að 'læra' það, en kommon... dautt tungumál? Og svona þungt mál í þokkabót? Þetta skólakerfi er með eindæmum...

9:24 f.h.  
Blogger Helga said...

Já það á eftir að koma í ljós hvernig hún kemur út í skólakerfinu á Íslandi. Hún er mjög spennt að fara í íslenskan skóla, matreiðsla, smíðar, hannyrðir og fullt af skemmtilegum fögum. Ekki latína og svoleiðis þungt dót.

11:14 f.h.  
Blogger Bippi said...

Það hlýtur að vera hræðilegt að vera barn í Þýskalandi og eiga erfitt með að læra...... mér finnst verklegu fögin alveg jafn mikilvæg og bóklegu fögin og gefur börnum tækifæri til þess að blómstra á öðrum sviðum heldur en á kafi í bókunum.

Snorri elskar Val, íþróttir og heimilisfræði....hann þolir ekki fimmtudaga því þá er hann "bara" uppi í sinni stofu;)

3:38 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Eru það krakkarnir eða foreldrarnir sem velja Helga? Líklega eru það oftar foreldrarnir eða hvað?

Ég mundi leyfa Nínu að velja, vegna þess að skv. öllum kennslufræði- kenningum er það ávísun á mun betri árangur ef nem. hafa e-ð að segja um val námsgreina, eða í það minnsta halda að þeir velji sjálfir. Ef hún velur frönsku þá er það bara fínt. Latínuna tekur hún þegar hún þarf þess, þ.e.a.s. seinna í lífinu, ekki satt?

Bestu kveðjur í kuldann í Þýskalandi og í Danmörku!

1:51 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Sammála frú Sigríði!

Er að missa vitið hérna á kafi í snjó, sé fram á sumar í skíðagalla að velta mér upp úr snjó á ströndinni...

Farðu vel með þig í kuldanum Helga mín!

8:35 e.h.  
Blogger Helga said...

Ég er búin að reyna að breyta skoðun Nínu en hún ætlar að fara í frönsku, amk er það staðan þessa dagana. Auðvitað eru það yfirleitt foreldrarnir sem velja, eða reyna að hafa áhrif á val krakkanna. Hún var alltaf búin að vera ákveðin í að fara í latínu en það hefur breyst núna því besta vinkonan ætlar í frönsku og það er strákur sem situr við hliðina á henni sem hún þolir ekki og hann fer í latínu....

Heyrðu það er búið að snjóa daglega í bráðum viku hjá okkur núna, sem betur fer bráðnar snjórinn alltaf strax, ekki eins slæmt og hjá ykkur í Árhúsum. Það virðist vera besta veðrið á Íslandi í Evrópu þessa dagana. Alls kyns ófarir hér í Þýskalandi....

8:01 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters