Tjaldafmælisveisla
Var á heimilinu í gær, fram til morguns. Nína var að halda upp á 11 ára afmæli sitt, þessi perla. Meira hvað tíminn líður. Komin á tólfta árið þessi elska. Hún bauð fimm stelpum úr nýja bekknum sínum, einni vinkonu úr götunni og einni vinkonu frá Munster sem við kynntumst í Svíþjóð (dóttir prestsins) en þær hittast af og til og gista og leika mikið saman. Stelpuskarinn mætti kl.16 og var fyrst farið á herbergi og kjaftað og pakkar opnaðir. Aðalgjafirnar voru bækur og púsl en það er einmitt mikið áhugamál hjá Nínu. Púslið er frekar flókið, það er bolti og með mynd af hundum. Bækurnar voru, vinabók og tvennar bækur um dýr, önnur um hesta og hin um hunda. Hópurinn náði virkilega vel saman og þurfti maður lítið að skipta sér af þeim. Þær fóru í aktionary, í tveimur liðum og það var frábært að fylgjast með þeim, spennan alveg að ganga frá þeim á köflum og þegar það var allir spila munaði mjóu að þakið færi ofan húsinu.
Veðrið var ekki upp á sitt besta en það skánaði mjög með kvöldinu og þær voru alveg hundvissar að ætla að sofa í tjaldinu þegar að því kom að undirbúa allt fyrir svefninn. Hver ætti að sofa hvar og svo framvegis, það þurfti nú aðeins að ræða það en allir urðu sáttir að lokum. Ekki ætlaði að ná að róa liðið sem var búið að ákveða að ætla að vaka til 05 um morguninn. Við Alex vöknuðum um þrjú leitið við þessi læti í garðinum en herbergið okkar snýr í átt frá glugganum! Þá urðum við að stoppa geymið og eftir það var ró og allir lágu til 9 í morgun á sínu svefnplássi. En þetta er nú alveg rosalega gaman að gista í tjaldi og þær höfðu svakaleg gaman stöllurnar. En mikið lifandis ósköp er ég fegin að þetta er búið og gert!
Á morgun er svo Brunch hjá Þórunni og Andrési, hlakka til að sjá þau. Eins gott að ná góðum svefn svo ég nái þreytunni úr mér frá því í fyrri nótt.
Gleðilegan 1.maí allir saman!!!!


2 Comments:
Já það er alltaf gaman að halda afmæli en líka mjög gott þegar að það er búið. Ég heyrði eina mömmu segja eftir afmæli dóttur sinnar að kennarar ættu að fá hærri laun;)
Tala nú ekki um tegar tad er gist og tjaldad og allt. En tad er gott ad allt gekk vel fyrir utan tad ad ein stelpan veiktist af gubbupest og turfti ad fara heim.
Skrifa ummæli
<< Home