fimmtudagur, apríl 27, 2006

Húsið og afmæli Nínu

Aðeins að monta mig af húsinu okkar, við ákváðum að breyta aðeins frá seinasta skipulagi, lækka þakið yfir helmingnum af húsinu og það kemur mjög vel út finnst okkur. Nú fer þetta að koma á lokateiknistig frá Alex þannig að við getum kannski bráðum loksins farið að sækja um byggingarleyfið. Svo á eftir að gera rafmagnsteikningar, pípulagningateikningar og burðarþolsteikningar og eitthvað fleira. Þannig að það á eftir að taka smá tíma til viðbótar áður en eitthvað róttækt gerist hjá okkur.

Nína ætlar að halda upp á afmæli sitt um helgina, hún býður 7 stelpum, 5 úr bekknum og 2 öðrum í tjaldpartý. Þær ætla að sofa í tjaldi í garðinum hjá okkur, í gær í veðurfréttunum var svo talað um næturfrost frá laugardegi fram á sunnudag. Þannig að etv færum við gleðina inn í stofu við mikla óánægju stelpnanna. Undanfarna daga er búið að vera æðislega fínt veður, á sunnudaginn þegar við komum frá Íslandi úr snjókomu var 15 stiga hiti hér, á mánud. fór hitastigið upp í 25 stig í sólinni og í dag er aðeins kaldara en verið hefur en samt spáð 15 stiga hita og svo endilega á að koma næturfrost þegar við ætlum að hafa tjaldpartý. Ég er búin að fá lánað eldstæði til að gera varðeld í garðinum til að grilla marsmellows og stockbrot (brauðdeig á spýtu yfir eldinum). Þannig að það á örugglega eftir að vera svaka gaman þrátt fyrir að gistingin færist kannski inn í stofu.

Ég leyfi ykkur að fylgjast með, bið að heilsa í bili

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters