laugardagur, maí 13, 2006

Óléttunámskeið og tilbúinn matur

Ég fór í annan tímann á óléttunámskeiðinu mínu. Við vorum að gera æfingar og svo var ljósmóðirin að fræða okkur um hvernig þetta væri hér á sjúkrahúsinu. Það væri gert ráð fyrir að konur væru í 3-5 daga eftir fæðingu á sjúkrahúsinu. Á þriðja degi er önnur barnalæknisskoðunin og í raun gæti maður farið heim eftir það. Þegar heim er komið er svo ljósmóðurheimsókn í allt að 8 vikur eftir fæðingu möguleg. Annar möguleiki væri að fara heim 6-8 tímum eftir fæðingu og fá ljósmóður daglega heim í fyrstu fimm dagana heima og svo í allt að 8 vikur eftir fæðinguna eftir þörf. Spennandi finnst ykkur ekki. Hún gerði mikið úr því hve lítið konur kæmust í ró á sjúkrahúsinu. Mikilvægi þess að láta fólk vita að maður kærði sig ekki um heimsóknir svona fyrst eftir fæðinguna. Sumir væru komnir í heimsókn fyrir tíu um morguninn eftir fæðinguna!

Svo gerðum við leikfimisæfingar og töluðum um hitt og þetta. Nokkrar eru komnar með ansi svera fætur og tíða samdráttaverki, hvíla sig væri aðal málið. En það er orðið svo heitt, á skömmum tíma og þetta fer auðvitað alveg með þreytta ólétta fætur, híhí....

Nína var svo búin að elda þessi elska þegar ég kom heim, kl. 19:30, var ferlega pirruð, LOKSINS, maturinn er búinn að vera tilbúinn í hálftíma!!! Alex var á sundæfingu og hún búin að bagsa þetta í eldhúsinu ein heima. Frábært hjá henni. Við vorum búin að biðja hana um að elda en hún er mjög dugleg í eldhúsinu. Maturinn bragðaðist mjög vel og kláraðist upp til agna, þess vegna er líka þetta góða veður í dag þótt að það hafi verið búið að spá þrumum og eldingum og rigningu.

Nína er í afmæli í dag og Alex í svona nokkurs konar river rafting með íþróttafélaginu sínu, ég er ein heima í ró og næði og nýt þess til hins ýtrasta.

3 Comments:

Blogger Bippi said...

Verðurðu að ákveða þetta fyrir fæðingu?
Geturðu ekki bara séð hvernig þér líður þegar að litli er kominn í heiminn?

Já það er munur að það sé eldað ofan í mann!!! ;)

11:28 f.h.  
Blogger Helga said...

Nei það er ekki hægt að ákveða þetta fyrirfram því það getur svo margt komið uppá og spilað inní. Til þess að geta farið heim eftir stuttan tíma þarf allt að ganga vel og það er ekki hægt að segja til um það fyrirfram.H

7:28 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst ekki síður truflun bara af starfsfólkinu á spítala það er sífellt ráp, það er matseðillinn og það er komið og boðið upp á leikfimi, stofugangur og svo margt fl.eins og við könnumst við Helga af spítulunum.
Ég var alla vega fegin þegar ég komst heim þegar ég átti Heiðdísi.

Ég held að Nína verði kokkur(-;
GBB

12:06 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters