Morgunsund
Í morgun hefði ég næstum náð því að komast í bæjarblaðið!
Við hjónin stilltum vekjaraklukkuna extra snemma til að fara í sund fyrir vinnu hjá Alex. Það þýddi að við vorum mætt í laugina kl.6:30 í morgun og viti menn laugin var bara nokkuð full af eldri syndandi fólki sem talar saman á meðan það syndir!
Ástæða þess að við gerðum okkur þetta í morgun er að í dag opnaði útilaugin sem er glæný viðbót við innilaugarnar sem eru núna fjórar, þar af ein barnalaug, ein ungbarnalaug, ein laug til að synda og ein laug fyrir leikfimissundtíma sem er innilokuð í glerrými. Úti eru núna tilbúnar tvær laugar, ein laug með svona hringkraftsogi og einhverjum skemmtilegum vatnsleikjum og beinni rennibraut eins og er á Akranesi og ein laug til að synda. Þetta var mjög hressandi, ég synti mína 500 metra og var bara nokkuð ánægð með mig.
Á leiðinni heim komum við svo við í bakaríinu og fengum okkur ljúffeng volg rúnstykki í morgunmat. Ég lagði mig svo og Alex fór til vinnu.
Í dag er svo sú æsispennandi viðureign Þýskaland á móti Argentínu. Það verða vonandi ekki margir sem missa af þeim leiknum. Það borgar sig að skella sér í heimsókn til þeirra sem geta séð leikinn eða bara hreinlega á bar og láta fara vel um sig þar og fylgjast með leiknum. Góða skemmtun, ég ætla amk að horfa á leikinn. Ég ætlaði að reyna að dobla manninn minn með mér á einhverja kránna en hann heldur að það séu of mikil læti fyrir bumbubúann okkar!! Sjáum til hvað úr verður, en við óskum Þjóðverjum sigur það er á hreinu.....


4 Comments:
Það er örugglega ekki oft sem að óléttar konur dobbli mennina sína á pöbb;)
Annars ólst hún Hekla mín upp við lúðrasveitaæfingar á meðan að hún var í mallanum á mér. Ekki hlaut hún mikinn skaða af;o)
Við horfðum sem betur fer á leikinn heima, þetta var nú ekki eðlileg spenna.... en svo fórum við út í bæ til að fylgjast með fagnaðarlátunum sem var mjög áhugavert..... ttil hamingju Þýskaland...
Your are Nice. And so is your site! Maybe you need some more pictures. Will return in the near future.
»
Keep up the good work. thnx!
»
Skrifa ummæli
<< Home