Nína á reiðnámskeiði
Nína fór gallvösk á reiðnámskeið á laugardaginn og verður í viku. Um leið og við komum í sveitina hljóp hún á undan okkur og vissi ekki af okkur meir. Það er nú alltaf gott merki þegar krakkarnir hanga ekki utan í foreldrum sínum og geta varla kvatt. Við þurftum að leita hana uppi til að geta kvatt hana áður en við fórum, eftir að hafa fengið okkur dýrindis vöfflur og kakó með rjóma (Í 25 stiga hita!! maður hefði kannski átt að fá sér ískaffi frekar!) Síðan á laugardaginn höfum við ekki heyrt neitt af henni, né frá vinkonunni. Mamma Mónu sem fór með Nínu sagðist mundu hringja í okkur ef hún frétti eitthvað. Það er nú góðs viti að þær séu ekki hringjandi í okkur, þá er greinilega rosa gaman hjá þeim og ekki vottur af heimþrá. Ég hlakka mikið til að fá hana aftur heim á laugardaginn og það verður gaman að heyra hvað hún er búin að upplifa þarna.
Ég er annars bara búin að hafa það mjög gott, læt mér líða vel, legg mig og tek því rólega á milli þess sem ég reyni að gera eitthvað smotterí. Fer í kaffi og morgunmat til vinkvenna og að skoða út í bæ og hef það bara reglulega gott.
Nú er ekkert búið að fréttast af Svönu þannig að það er vonandi komið barn á því heimilinu???
Heimsmeistarakeppnin á fulllu og við dugleg að horfa á leikina sem eru sýndir í opinni dagskrá hér í Þ'yskalandi. Ég er rosa spennt fyrir leiknum á föstudeginum, Þýskaland á móti Argentínu. Þjóðverjar eiga nú að geta unnið Argentínu, við bíðum bara róleg en ég spái því að ef Þjóðverjar vinna leikinn þá verða þeir heimsmeistarar! Og hananú!!!
Breytingar eiga sér stað hjá Óla bróður, hann er búinn að fá þessa líka fínu vinnu frá og með ágúst. Þar sem námið hans nýtist að fullu og það væri ekki hægt að óska sér betri stöðu fyrir hann, það verður gaman að fylgjast með þessu hjá honum. Hann heldur samt áfram í Masters náminu sínu og klárar það. Flottur gaur! Hann var feginn að geta sagt upp sumarvinnu sinni í álverinu en þar er ástandið ekki gott.....Til lukku...
Það sama má segja um spítalana, amk háskólasjúkrahúsin í Reykjavík. Ein vinkona mín er búin að segja upp stöðu sinni á sjúkrahúsinu og er að fara að vinna dagvinnu á Heilsugæslustöð. ÞAð á ekki að láta bjóða sér hvað sem er. Vissulega eru þetta miklar breytingar en það er sama, þetta á örugglega eftir að koma betur út fyrir hana sjálfa og fjölskyldu hennar að vera ekki í Þrælabúðum spítalana eins og önnur vinkona mín orðaði það! Til lukku með þetta..
Læt þetta nægja í bili dúllurnar mínar, hafið það sem best í góða veðrinu sem ég er búin að frétta að er núna á Íslandi!!! Loksins!


5 Comments:
Zeinkjú Zeinkjú...
Gó djörmaní!!! Hlynur er í þýska landsliðsbúningnum sínum innanundir til lukku :)
Takk dúllan mín, ég er full tilhlökkunnar að verða venjuleg mamma sem er heima á kvöldin og um helgar og vera ekki örmagna af þreytu eftir vaktirnar.
ég vona að þú hafir það gott með þína bumbu :)
kv Systa
Ég er viss um að það boðar gott að Hlynur er í þýskalandsbúningnum sínum.
Já Systa þetta á eftir að verða viðbrigði að þurfa á hverjum degi að vinna en þú átt eftir að njóta þess að eiga hverja helgi og hvert kvöld í frí með fjölskyldunni.
Það er sko ekkert að gerast hjá mér Helga mín, þannig að ég verð sett af stað í fyrramálið, þá komin tólf daga fram yfir! Vonandi gengur þetta vel og barnið kemur í heiminn sem fyrst. Það er spáð 31 gráðu hitamollu um helgina þannig ég bara bið fyrir mig, ekki til loftkæling á sjúkrahúsum hér.
Læt þig vita hvernig fer, vona þú hafir það gott á síðustu dögum óléttunnar!
Svana x
Takk Inga mín, nei ekkert að gerast á þessu heimili enda tvær vikur í reiknaðann dag. Hugsanlega geng ég alveg út þann tíma. Geri amk ráð fyrir því, þrátt fyrir spáða hitamollu í næstu viku, úfff...
Svana mín, gangi þér vel á morgun, þú veist að dodo er gott til að koma einhverju í gang.... vonandi kemur barnið nú sem fyrst hjá þér og vonandi getur þú farið fljótt heim af spítalanum fyrst það er ekki einu sinni kæling þar! Ég hugsa til þín...
Skrifa ummæli
<< Home