Tölvan uppi alltaf að frjósa
Ohhh hvað ég var búin að gleyma hvað það er ferleg tilfinning þegar allt sem maður skrifar eyðist. Svona tilfinningu fékk ég í morgun þegar ég ætlaði að vera góð að blogga eftir að hafa lagt mig aftur upp í rúm eftir að Alex og Nína voru farin í sínar skyldur. Ég náði að sofna og haldið ekki að Vottar Jehóva hafi vakið mig, ég var ekki neitt smá pirruð, ég meina klukkan var vel tíu og allt í lagi að vakna en ekki við Vottana.
Það er blessaður hitinn í dag, 30 plús, ég er búin að vera inni í allan dag nema þegar ég keyrði Nínu og vinkonu hennar í útisund og fór aðeins í búð að versla. Þegar ég kom heim var ég eldrauð í framan og að deyja úr þorsta. Á morgun á veðrið að breytast, rigning, loksins fyrir blessaðan gróðurinn og svo á að kólna það sem eftir er af vikunni.
Helgin var ansi fjörug, ég náði nú samt góðri hvíld á sófanum sem ég þarf virkilega á að halda þessa dagana. Alex greiið á mjög bágt á nóttunni, ég hrýt svo hrikalega segir hann að það er ekki hægt að ná nokkurri hvíld. Hann vonar bara að þetta skáni eftir fæðinguna. Ég sagði nú við hann í gríni að hann ætti nú bara að prufa að vera óléttur þá mundi hann kannski skilja þetta. Híhíhíh....
Við byrjuðum laugardaginn á því að fara í útisund og það var mjög hressandi. Við vorum ekki ein sem gefur að skilja í þessu góða veðri og því miður fær hreinlætið að gjalda þess að veðrið sé svona gott. Við erum svo góðu vön á Íslandi, hér eru fáir starfsmenn í sundlaugum og ekki mikið verið að þrífa inn á milli þannig að hárbrúskar og drasl safnast í sturtum og klósettin eru ekki þau hreinlegustu en ef maður er bara í sundtöflum öllum stundum þá gengur þetta alveg upp.
Ég fór á leikritið í skólanum hennar Nínu á laugardeginum, það var söngleikur um Tabalúga, græna drekann og Arktos sem á heima í frostveröldinni. Þetta var ágætlega gert hjá þeim, Nína var í kórnum sem kom og fór nokkrum sinnum af sviðinu. Það sem mér finnst bara mjög sorglegt er þegar krakkar eru látnir syngja í míkrófón og halda ekki lagi. Ég meina ég var nú líka það frökk á árum áður að ég söng í míkrófón þótt ég hafi nú aldrei verið fræg fyrir að halda vel lagi en þetta var einum of.
Nína stóð sig mjög vel og það var gaman að sjá leikritið.
Á sunnudeginum tók Alex þátt í Triathlon Aasee, í Bocholt, hann var 2:25 með 1,5 km sund, 40 km hjól og 10 km hlaup. Ansi gott hjá honum, hann var 8 mínútum á eftir þeim besta í hans íþróttafélagi sem er bara mjög gott.
Við drifum okkur svo eftir að hann var kominn heim á opið hús á vökudeildinni og fæðingargangi hér á sjúkrahúsinu. Það var mjög gaman. Ég var reyndar búin að fara og skoða en ekki Alex og ekki Nína. Vökudeildin var bara með eitt herbergi til sýnis og sýndi þar hitakassa fyrir litla og opinn hitakassa fyrir stóra litla. Svo voru mónitorar, manchettur, sprautudælur og fleira dót til að skoða. Ég gat ekki betur séð en þetta væri bara svipað og hjá ykkur Sigga. Misgamalt dót eins og gerist en samt áhugavert að skoða svona. Vökudeildin er ekki mjög stór hér en getur samt tekið við þríburum og öllum veikum litlum fyrirburum. Hún skiptist eftir því sem ég best veit í nokkur herbergi, eftir veikleika og örugglega þyngslum í hjúkruninni.
Jæja þetta er orðið gott, ég þarf að fara að hugsa um kvöldmatinn fyrir íþróttaeiginmann minn sem var að koma heim á hjólinu sínu og er að fara í sturtu.
Svana hvernig er það með þig, á ekki að opna barnalandssíðu eða blogg eða eitthvað til að það sé aðeins hægt að fylgjast með ykkur þarna í hitanum í London?


2 Comments:
Jú ég þarf að fara að skoða barnalandið og ganga í klúbbinn. Mér finnst svo gaman að vera í fæðingaorlofi að ég veit ekki hvernig ég á nokkurntíma eftir a vinna aftur! Rosalega gaman að geta fylgst með öllum á netinu og haft það næs. Ekki verra að geta horft á allan þennan fótbolta þarna hjá ykkur í Þýskalandi!
Jiiii ég er nú ekki fótboltaáhugamanneskja en er guðs lifandi fegin að hafa eitthvað til að horfa á á hverjum degi.
Ég þarf að fara að tékka á þessu með barnaland líka, svo lengi sem við erum hér úti, kannski áfram líka fyrir fólkið hans Alex þegar við erum flutt á Frónið.
Gaman að þú fylgist með, hvernig er annars heilsan svona þessa síðustu og heitustu daga í meðgöngunni?
Skrifa ummæli
<< Home