Fæðing nálgast og hitinn helst....
Hæ hæ, eins gott að láta vita af sér, það er yndislegt hvað fólk er farið að hringja og senda sms hvort það sé nokkuð að missa af einhverju. Nei það er enginn að missa af neinu, amk ekki enn sem komið er. Takk fyrir að hugsa til mín dúllurnar ykkar. Ég reyni að vera dugleg að gera eitthvað á hverjum degi, skúra gólfin, ryksuga, þrífa eitthvað sem sjaldan er þrifið, fara í útisund, hjóla, fara í verslunarleiðangur á hjólinu o.s.frv. En það dugar ekkert til.... ég er í besta falli alveg búin á kvöldin, með verki í lærunum, en ekki í maganum og kannski pínku sting í neðanverðum maga sem fer nánast eins fljótt og hann kom.... Hreyfingar eru hins vegar orðnar svo kröftugar og það liggur við að maður sjái móta fyrir táslum í gegnum magann þegar verið er að sparka og þá held ég oft að ég sé að fá verki, en það eru sennilega bara rifbeinin sem eru að láta vita að þau séu líka til staðar.... Ljósmóðirin mín sagði að kúlan væri enn of hástæð og ég ætti að vera þolinmóð... Ég verð að segja að lundin er ekki alveg upp á sitt besta þessa dagana en það eru pottþétt ekki meira en tvær vikur eftir af meðgöngunni ef við reiknum þá tíu daga með sem maður er látin fara framyfir hér í Germaníu... þannig að maður gerir nú sitt besta með að halda skapinu í skefjum.
Eitt er víst, í næstu óléttum, ef þær verða einhverjar (sem væri frábært!!!) verð ég ekki hér í hitanum á lokasprettinum..... En ég verð að segja að eftir að ég ákvað að flytja niður í gestaherbergi útaf næturhita í svefnherberginu okkar þá er bara búið að vera sæmilega kalt á nóttunni í svefnherberginu þannig að ég er ekki ennþá flutt. Þannig að þá hef ég sofið betur og ekki svitnað svona og það skiptir miklu máli. En ég fer niður ef það er of heitt hér uppi það er alveg ákveðið....
Þetta eru vandamál sem maður hefur, alveg merkilegt ekki satt. Búið að vera svona yndislegt veður hjá okkur bara í fleiri, fleiri vikur og svo gerist maður svo grófur og er að kvarta, ég ætti nú að skammast mín!!! En ég sendi ykkur nokkrar gráður á hverjum degi til Íslands, vona bara að þær komi til skila!!!
Já og frétt dagsins, Klinsmann er búinn að segja upp starfi sínu sem landsliðsþjálfari og aðstoðarmaður hans hefur tekið starfið af sér. Allir eru svo sorgmæddir yfir þessu en Klínsí segist bara þurfa að hlaða batteríin, hann sé alveg búinn, frábært að svona "máttugir" menn segi svona, ekki bara hjúkkur og fólk í kvennastörfum sem fá burn out syndrom.....


18 Comments:
Bíð þolinmóð með þér-hitagráðurnar eru ekki ennþá komnar en hljóta að vera á leiðinni..kv. Hildur
Úff þú átt alla mína samúð!!!
Ég skal reyna að senda þér á móti eitthvað að kuldanum hérna til að hressa þig við :)
Kannski maður ætti að fara út í veðmál hvenær barnið ákveður að koma? Væri spennandi ekki satt... Í verðlaun væri svo mynd af barninu nýfæddu.... Óli spáir á fimmtud., mamma mín spáir 16. s.s. á sunnud., þetta gæti orðið spennandi....
Ég vildi að þú gætir sent eitthvað af þessum hitagráðum hérna norður til okkar;o)
Ég segi 17. júlí;o)
Gangi þér áfram vel;o)
Ég tapaði næstum gleðinni þegar ég var ólétt í hitabylgjunni hér á Ísl í ágúst 2004, það voru samt bara ca 4-5 dagar með 19-20 stiga hita :S
Ég hef mikla samúð með þér, ég sendi þér kalda strauma úr Kópavoginum :)
Kv Systa
Til hamingju elskurnar, fæddur yndislegur drengur um klukkan 11 í morgun þann 13. júlí.
Óli var sem sagt með rétta daginn. Hlakka til að sjá myndir af prinsinum :)
Allir biðja að heilsa ykkur.
Hjartanlega til hamingju elsku Helga, Alex og Nína með drenginn. Nú get ég ekki beðið eftir að sjá myndir af honum ;o)
Kveðja af Garðabrautinni,
Heiðrún, Bippi, Snorri og Hekla
Innilega til hamingju, Helga, Alex og Nína! (Við vorum búin að skjóta á 12., afmælið hans Eriks)
Hlakka til að heyra í ykkur og sjá myndir,
bestu kveðjur af Vogabraut 10
Kæra Helga og fjölskylda.
Til hamingju með prinsinn, gangi ykkur sem allra best!!
Verður gaman að sjá myndir:)
Kv. Rannveig og strákarnir
Það eru komnar myndir af Baltasar á bloggið hjá fjölsk. Eck (á mína bloggsíðu líka)
Hann er yndislegur eins og hann á kyn til :)
Bestu kveðjur frá ömmu Siggu
Kæra fjölskylda innilega til hamingju með prinsinn,gangi ykkur sem allra best.
Kv Jóhanna,Ingþór og co
Veiiiii! Til hamingju Helga, Alex og Nína! Ég var einmitt að vorkenna þér svo mikið í óléttunni og svo bara allt í einu er prinsinn mættur! Rosalega gaman og bara ekki tvær vikur á milli hjá okkur, þeir fá nú vonandi að hittast sem fyrst júlí strákarnir okkar.
Vona að allt hafi gengið sem best og þið séuð hress og kát!
Ástarkveðjur,
Svana x x
Dásamlegt!!!
Til hamingju elsku Helga mín, Alex og Nína! Vonum að öllum heilsist vel!
Bestu kveðjur frá B4 í Lystrup.
Elsku Helga, Alex og Nína
Innilegar hamingjuóskir með prinsinn. Hlakka til að sjá myndir af honum.
kær kveðja
Christel, Gunni og krakkarnir
Innilega til hamingju med prinsinn! Ég reyni svo ad kíkja á ykkur ádur en ég fer aftur til íslands.
Bestu kvedjur frá Osnabrück,
Hrafnhildur Ýr og fjölskyldan Hinrichs-Steeg.
Hæ Hæ!
Ég trúi þessu eiginlega ekki er kominn strákur ég er búin að bíða mjög spennt.
Til hamingju elskurnar mínar þetta er frábært.
kveðja Greta,Lúlli,Kiddi,Bjarki og Heiðdís Edda.
I like it! Keep up the good work. Thanks for sharing this wonderful site with us.
»
Very pretty design! Keep up the good work. Thanks.
»
Skrifa ummæli
<< Home