laugardagur, júlí 08, 2006

Brúðkaupsdagur og til hamingju Þýskaland

Við eigum okkar 6.brúðkaupsdag í dag, erum að fljóta inn í fjórtánda sameiginlega árið okkar, ég varð nú bara hlessa yfir þessum árafjölda með dúllunni minni, hefði ekki trúað þessu, næstum hálft lífið mitt, nei ekki alveg en samt. Enn erum við á því þrettánda....

Við erum þakklát fyrir þessi ár saman, erum búin að upplifa ýmislegt sem hefur eflt okkur og aukið ástina á milli okkar. Fyrir sex árum stóðum við fyrir framan altarið í neskirkju og Séra Örn Bárður gifti okkur. Þetta var yndisleg athöfn sem fór fram á þýsku og íslensku, þökk Séra Erni og Eveline og Christoph og Þóru systur.... En miklu fleiri komu að því að gera veisluna ógleymanlega og hún verður lengi í minnum höfð. Við höfum alltaf gaman af því að horfa aftur og aftur á vídeo sem tekið var í veislunni, því miður náðust lok veislunnar ekki á tape því öll myndböndin voru búin. Það átti enginn von á svona langri veislu..... ótrúlegt stuð.... takk allir sem veittu okkur hjálparhönd.

Og núna erum við enn og aftur að standa frammi fyrir miklum breytingum í hjónabandi okkar. Fæðing nýs einstaklings inn í fjölskylduna, bráðlegur flutningur til Íslands með atvinnuskiptum og skólaskiptum er ekki eitthvað sem maður bara gerir. Eins gott að vera með gott fólk á bak við sig og standa saman í svona stórræðum sem við gerum þökk fjölskyldum og vina okkar.

En í kvöld var leikur Þjóðverja um þriðja sætið í heimsmeistarakeppninni, þeir náðu að vinna þann titil og gerðu það með stæl. Það sem þessi keppni skilur eftir sig í landinu er ótrúlegt, þjóðverjar eru með fána í hönd, aftur eftir áratuga bælingu ef svo má segja. Þjóðarstolt vaknar af löngum svefni og unga fólkið hefur rifið þetta upp með rótum í kring um keppnina. Allir hafa gaman af því að finna aftur svona við tilfinningu sem hefur annars ekki verið. Þjóðverjar fá jákvæða umfjöllun sem gestgjafar, liðið fær jákvæða umfjöllun og Kahn ætlar að hætta í landsliðinu!!!!

Góða helgi það sem eftir er kæru félagar, enn er ekkert að gerast hjá okkur bumbubúa, niðurtalning heldur áfram, 14.júlí er áætlaður fæðingardagur þannig að ...... krossleggja fingur og þakka fyrir hvern dag sem er ekki svo heitur!!!

10 Comments:

Blogger Bippi said...

Hjartanlega til hamingju með brúðkaupsafmælisdaginn ykkar elskurnar mínar!
Frábært að skoða myndirnar ykkar, þið hafið það greinilega mjög gott.
Já, nú teljum við niður Helga mín;o)

1:56 f.h.  
Blogger Helga said...

Takk fyrir það, já við bíðum spennt.... hvernig gekk á keppninni???

10:42 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með daginn, ótrúlegt hvað árin líða hratt. Finnst eins og það sé ekki svo langt síðan við djömmuðum svakalega í ótrúlega skemmtilegu brúðkaupi. Gangi þér nú vel á síðustu dögunum Helga mín. Hugsa til þín.
Knús frá Íslandi

2:09 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með brúðkaupsafmælið :)

12:46 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með brúðkaupsdaginn ykkar;)
Kveðja Greta

4:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir stelpur mína, við áttum góðan dag, þrátt fyrir að maður sé slappur... í hitanum og með aukakílóin, læt ykkur fylgjast með...

kveðja Helga

5:45 e.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Til hamingju með daginn. Fallegur dagur sem þetta var... ég var að átta mig á því að ég söng í þessu brúðkaupi líka þannig að það er 'garentíd' að ykkar endist... ég er lukkutröll brúðhjóna! Ekki það að ást ykkar þurfi á lukku minni að halda :)
Hafið það gott á lokasprettinum og gangi ykkur vel í fæðingunni (sem kemur á fimmtudaginn (spá)).

12:53 f.h.  
Blogger Helga said...

Fimmtud. í ÞESSARI viku!
Takk Óli minn....

2:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Looks nice! Awesome content. Good job guys.
»

4:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Interesting website with a lot of resources and detailed explanations.
»

8:04 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters