Frábær upplifun og margt búið að gerast á fimm dögum
Hæ elskurnar,
takk fyrir allar kveðjurnar sem þið hafið sent okkur, hér á blogginu, barnalandinu og í síma og email. Yndislegt hvað það eru margir sem hugsa til manns, þrátt fyrir fjarlægð og það hve sjaldan maður hittist.
Síðastliðnir fimm dagar hafa verið mjög innilegir og við erum búin að upplifa margt saman litla fjölskyldan.
Mig langar nú að koma því að að deginum áður en Baltasar fæddist þá fórum við um átta leytið um kvöldið í tíu kílómetra hjólreiðatúr á fjallavegi hér við bæinn. Hugsanlega hafði það sitt að segja um byrjun fæðingarinnar síðan um nóttina. Fæðingin gekk eins og í sögu, ég hefði varla trúað að þetta væri hægt svona. Verkirinir byrjuðu um þrjú um nóttina ég var nú ekki viss hvort þetta væru alvöru þannig að við hinkruðum til að ganga sex og fórum þá á sjúkrahúsið. Þá var einn í útvíkkun, við fengum okkur göngu til rúmlega átta og þá voru komnir þrír í útvíkkun. Svo var hann fæddur kl.11. Alveg ótrúlegt finnst ykkur ekki.
Við fórum svo heim eftir sólarhring á sjúkrahúsinu og erum búin að vera hér í góðu yfirlæti hjá Alex kokk og reddara með Nínu aðstoðarkonu sér við hlið. Alveg búið að stjana við mig og elda ofan í okkur dýrindis mat og gera allt fyrir mig. Á annari nóttu hér heima datt svo naflastrengurinn af og allt lítur vel út á þeim bæ. Í gær kom svo mjólkin, alveg troðin brjóst og rauðar hellur. Þá fór Alex og keypti kálhaus því hann á maður að kæla og leggja síðan á bert brjóst til að kæla. Ég tók Remediur og drakk lítið og kældi og nú lítur allt betur út. Hann Baltasar er líka svo duglegur að drekka þannig að ég hafði áhyggjur af stíflu og sýkingu að óþörfu.
Nú er Baltasar orðinn fimm daga gamall og ég er spennt hvað hann er orðinn þungur í dag, það er karrýgulur kúkur í nánast hverri bleyju, piss alveg á fullu og maður er alltaf að skipta um föt og bleyju því hann er svo duglegur í útkskilnaðar starfinu sínu, hehe....
Hulda frænka benti mér á það í einu kommenti að Björg frænka á sama afmælisdag og Baltasar, það er nú gaman að fá svona afmælisgjöf...
Jæja nú held ég áfram með prógram dagsins, borða, hvíla sig, gefa, hvíla sig, klæða sig, borða og svo framv. Alveg nóg að gera..... æðislega gaman hjá okkur og það er alveg barátta um að fá að skitpa á honum og halda á honum í þær fáu mínútur sem hann er vakandi áður en hann sofnar eftir matinn.
Nína er rosalega dugleg að hjálpa og gera allt fyrir mig. Hún er að brjóta saman þvottinn, skipa á honum, í gær vildi hún meira segja hengja upp þvottinn fyrir pabba sinn út á snúru, reyndar bara fötin hans Baltasars en það er sama. Hún kemur stöðugt á óvart og er dugleg að klæða hann og velja á hann föt. Frábært að hafa svona viljuga systur. Í dag ætlar hún í útisund með vinkonu sinni, það er búið að spá 33 stigum og á morgun 35 stigum..... en það fer nú ekki í mig lengur, nú nýt ég þess í ystu æsar.... Já og hann er búinn að fara tvisvar sinnum út í göngutúr, í gær og í fyrradag, bara stutt í einu, með þunna bleyju yfir sér því í 27 stiga hita, að kvöldi til um kl 20 þarf maður enga þykka sæng..... jæja þetta er orðið allt of langt hjá mér núna, ég bið að heilsa en bara svona til gamans, þá eru Alex og Nína uppi að skipta á honum í annað sinn á meðan ég skrifa þennan litla texta hér, stórt í bæði skiptin! Geri aðrir betur.....


9 Comments:
Helga min, innilegar hamingjuoskir til ykkar allra! Baltasar er yndilegur!! Vona ad allt gangi vel. Hlakka til ad sja ykkur!
(Eg er i Bretlandi nuna; Maggi og Thorhildur vaentanleg a fostudaginn.)
Bestu kvedjur,
Thora
Það er aldeilis frábært hvað gengur vel hjá ykkur og fínt að mæðginin stjana við þig:)
Í gamla daga stigu konur ekki í fæturna fyrr en 7 eða 10 dagar voru liðnir frá fæðingu (ekki þó þegar ég stóð í barneignum)
Ég hlakka mikð til að sjá Baltasar og ykkur og það styttist nú óðum í að við hittumst. Tíminn flýgur alveg áfram.
Ég hringi í þig seinna í dag.
Frábært hvað það gengur vel hjá ykkur. Haldið bara áfram að njóta þess að vera saman;o)
Gott að vita að allt gengur vel. Þetta er bara það besta í heimi!
Rosalega gekk þetta vel hjá þér, ég á ekki til orð! Hann er algjör prins og við fylgjumst grannt með ég og Otis. Við erum að rembast hérna í hitanum, með viftuna á fullu og endalaust drykkjustand þannig ég hef vart undan...
Svana x
Fimm daga gamall búinn að ná fæðingarþyngd sinni, flottur og duglegur að drekka ekki satt. Svana ég er líka bara að gefa, borða sjálf, fara í sturtu, gefa, en það borgar sig... Kíktu á ljosmodir.is undir spurt og svarað, frænka mín benti mér á þetta, ansi góð síða þar á ferð.
Við verðum eitthvað hæg að setja inn myndir þessa fyrstu og mestu drykkjardaga drengsins en það gengur allt yfir.
Takk fyrir góðar kveðjur, sólarhitakveðja úr heitasta degi ársins hér 32 stig núna um 12 á hádegi.
Sæl veriði kæra fjölskylda, mig langaði bara til að kasta á ykkur á ykkur smá kveðju. Gott að heyra að allt gangi vel. Vona að svo verði áfram. Héðan er allt gott að frétta úr rigningunni á Seyðis. Búin að vera í rigningu í allt sumar í borginni og svo langar manni til að sleppa við hana og drífur sig austur og þá er hún bara komin. Blessunin! Það er ekki öll von úti enn. Sleikiði sólina aðeins fyrir mig og hafið það áfram sem best. Hlakka svo til að sjá ykkur. kys kys Hlinsa
I say briefly: Best! Useful information. Good job guys.
»
Hi! Just want to say what a nice site. Bye, see you soon.
»
Skrifa ummæli
<< Home