Sigurvíma
Þetta var nú með ólíkindum að fylgjast með leiknum Þýskaland- Argentína í gær. Við hoppuðum og sveifluðumst í tilfinningaskalanum frá ofurgleði í ofursorg. Stressið var meira fyrir Alex sem dæmi má nefna að púlsinn fór upp úr öllu valdi og svitablettir mynduðust á stuttermabolnum í holhöndum hans. Alveg gífurleg spenna var svo í vítaspyrnukeppninni og markmaður Þýskalands Jens Lehmann hann hefur varla trúað þessu sjálfur því strax og ljóst var að Þjóðverjar höfðu unnið leikinn í vítaspyrnukeppninni þá fór Lehmann beint í búningsklefann. Eftir dágóða stund náðu þeir svo tali af honum og hann átti erfitt með að koma upp heilli setningu karlgreiið.
Leikurinn byrjaði ekki vel að mínu mati og einkenndist frekar af brotum og leikaraskap við að detta og þykjast meiða sig en að spila flottann fótbolta og það er eitthvað sem ekkert lið á að vera stolt af. Þjóðverjar og Argentínumenn voru mjög stressaðir í byrjun leiks, eðlilega, hver væri það ekki og það sást í spili þeirra. Ég er nú ekki að reyna að vera fótboltasérfræðingur hérna, ég viðurkenni líka að ég horfi bara á fótbolta í svona keppnum. Annars hef ég lítið rými fyrir hann....


4 Comments:
Já jésús hvað þetta var spennandi og alveg frábær markvarsla hjá Lehmann.
Við horfðum á vítaspyrnukeppnina nokkur hérna í þjónustuverinu af því að við hérna í Landsbankanum auðvitað elskum fótbolta :) Og öskrin.. Það héldu náttúrulega allir með Þýskalandi. Þetta var alveg stórkostlegt!
B.kv. Þóra systir
Já ég tek undir það, þetta var ótrúlegt og gaman að fylgjast með Alex í þessari spennu.... Ég hlakka til á þriðjudaginn. Vonandi ertu að vinna þá líka Þóra mín svo þú missir ekki af leiknum! Heppin að vinnan þín taki svona á þessu með heimsmeistarakeppnina.
Your website has a useful information for beginners like me.
»
Your site is on top of my favourites - Great work I like it.
»
Skrifa ummæli
<< Home