Þá er komin helgi, það er alltaf gaman þá. Nína og Alex geta alltaf sofið út og borðað morgunmat með eggjum og sjálfgerðum appelsínusafa (Nína gerir allt). Svo þegar búið er að borða morgunmat í hægindum sínum þá er tekið til, maður klæðir sig og Nina fer með nágrannavinkonu sinni í göngutúr, stundum verslunarleiðangur, að kaupa tannkrem eða eitthvað smotterí. Þeim finnst það voða gaman og uppeldislega séð eru þessi verkefni mjög þroskandi, að skoða hvað er til í búðum og reyna að velja hvað maður vill kaupa og kaupa sér svo nammi fyrir afganginn. En þetta með morgunmatinn þeirra feðgina þá er ég alltaf svooooo öfundsjúk þegar ég kem heim úr vinnunni og hef misst af öllum kræsingunum.... En eftir 8 daga þá get ég líka tekið þátt í helgar morgunmat fjölskyldunnar. Hælæt er auðvitað Kurbiskernbrötchen,,,,, bara smá insæder.
Við erum með smá vandamál núna, okkur er boðið í alsherjar afmæli ákkúrat þegar við vorum búin að plana að flytja.... Alltaf það sama, maður planar og planar og svo er alltaf eitthvað sem skerst á. Hann Matthiast bróðir Alex verður 40 ára og konan hans líka.... Svaka veisla þannig að við erum að spá í að hætta við að flytja..... Fresta því um óákveðinn tíma !!!! Ég sver það vinir og vandamenn þetta á eftir að verða svooo mikill léttir þegar við erum flutt í þetta hús ég meina það.
Núna eru þrjár vikur í að Nína fái umsögn í skólanum með einkunnum í fyrsta sinn á skólaferli hennar. Hún er alltaf í prófi núna, í hverri viku er annað hvort próf, æfing eða upplestur. Nína stendur sig vel í þessu hún er alltaf að reyna að fá einkunnina 1 en það er best og verst er að fá 5 eða 6 veit ekki alveg og hún fær oftast 2, þannig að það vantar bara herslumuninn á að hún fái 1. Ef hún myndi nú æfa sig aðeins (þau vita alltaf hvenær próf er) eins og margir hverjir í bekknum þá gengi þetta nú. En ég er hæstánægð með þetta. Vonandi lenda engir í því að þurfa að taka árið upp á nýtt en það er þekkt hér að krakkar falli um bekk standi þeir sig ekki eins og ber. Alltaf þegar það er búið að vera próf og krakkarnir fá prófin aftur með einkunnum þá fer iðulega einhver að gráta, Nína segir okkur alltaf frá þessu. Ein stelpan hefði sagt að hún færi í útivistarbann ef hún fengi lægra en 3..... Harður heimur....
Jæja, best að fara að hvíla sig, er búinn að vera að vinna í dag, skúra íbúðina (mér verður nú oft hugsað til þess að það er frábært við að búa í íbúð að maður er enga stund að þrífa hana, það á eftir að breytast þegar maður flytur í hús.... ohh hvað maður verður flottur....) þurka af og elda.... geri aðrir betur. Skil ekki hvað er að mér, ég er vön að leggjast á sófann þegar ég kem heim um ellefu (eftir að hafa byrjað um 6:40 í vinnunni) og hvíla mig en það er bara kraftur í mér í dag. Örugglega af því að Alex var að taka til í bílskúrnum, þá hefur mér fundist ég líka verða að gera eitthvað. Þar til næst, ykkar....
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
laugardagur, janúar 24, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home