sunnudagur, maí 29, 2005

Gott veður og sumarfrístilfinning

Hæ voða er ég léleg í blogginu þessa dagana. Og enginn segir neitt!

Sigga vinkona var gæsuð á föstudaginn. Sigga til hamingju með að vera gæs. Ég hefði sko verið meira en geðveikt til í að vera með ykkur á djamminu. Í staðinn húkti ég hér með hor í nös og var að vinna þessa helgi. Við vorum með gesti líka, Christoph bróðir Alex og Claudia vinkona hans voru hér hjá okkur frá fimmtud. til laugard. Við grilluðum, svitnuðum og vorum að tsjilla saman.

Nú er sunnudagur og við erum að fara í 65 ára afmæli hjá nágranna okkar honum Jósef. Það verður gaman að fara í grill og alls konar í afmælinu hjá honum, í þessu líka frábæra veðri.

Annars tekur við enn ein vinnuvikan en það fer aldeilis að styttast í fríið (ein nýkomin frá Barcelóna)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters