þriðjudagur, maí 17, 2005

Myndir og Alex farinn til Barcelóna

Hæ, ég er eitthvað svo andlaus og þreytt þessa dagana. Ég held að það verði gott fyrir mig að fara til Barcelóna og hitta Alex. Alveg svaka rómantík í gangi hjá okkur gamla settinu. En þetta er það sem gefur sambandinu kikk. Ég á eftir að njóta þess. Það er víst frábært veður en Alex náði samt að kvefast eitthvað og er með hor og slef, eins gott að það verði farið þegar við hittumst á föstudagsmorgun kl.8.

Ég er farin að nota Hallo til að setja inn myndir og það er svo lítið mál að ég er alltaf að setja inn myndir. Svaka stuð, er gaman að skoða þessar myndir?

Við Nína erum að fara að æfa lag sem hún spilar á fiðlu á tónleikum í tónlistarskólanum á fimmtudaginn, ég ætla að spila undir á píanó amk á æfingu hér heima. Nína vill helst að ég spili undir á tónleikunum en við sjáum hvernig gengur á æfingunni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters