17.júní
Kæru landsmenn, til hamingju með daginn.
Ég ætla að halda upp á hann á morgun með nokkrum þýsk-íslenskum fjölskyldum í Eifel. Við verðum hjá Svölu sem býður okkur heim í sumarveislu. Inga Marta verður þar, hún á afmæli í dag, til hamingju með daginn Inga Marta.
Ég er búin að vera að æfa mig á gítarinn og búin að búa til smá sönglagabækling til að við getum öll sungið saman. Það verður gaman. Við ætlum að gista á gistiheimili og njóta sunnudagsins í fallegu umhverfi.
Góða helgi og góða skemmtun áfram í dag....


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home