mánudagur, júní 20, 2005

Vinnuvika

Jæja nú fer aldeilis að styttast í að Nína fara í sumarfrí og komi til Íslands í heimsókn. Bara tvær og hálf vika eftir í skólanum. Það er búið að vera svo yndislegt veður hjá okkur síðustu daga, um 30 stig og sól. Eins og sést á myndunum.

Við vorum í burtu um helgina, fórum í Eifel en það er vestarlega í Þýskalandi, nálægt belgísku landamærunum. Þetta er yndislegt svæði, mikið af skóglendi, upp og niður og mikið af stöðuvötnum sem oft er hægt að baða sig í. Við nutum þess enn sem áður að vera saman í smá helgarfríi. Fórum fyrsdt á laugardeginum í sumarveislu til Svölu sem er ættuð úr Leirásveit, eystri Leirágörðum. Ótrúlega fyndið en svona er þetta. Það var mjög gaman, við sungum það sem ég var búin að undirbúa og gekk mjög vel, nema hvað ég var rauð í framan við að einbeita mér að spila og syngja rétt. Þetta getur verið flókið þegar maður er að byrja að spila fyrir framan aðra.

Læt fylgja nokkrar myndir, hafið gaman af.
ég er á kvöldvakt þessa viku, ákkúrat þegar það er svona heitt, ótrúlega erfitt að fara að vinna á bíl útum allan bæ í yfir 30 stiga hita.

bestu kveðjur
Helga

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters