Lífið og trúin
Byrjar vel ekki satt. Ég hef mikið verið að hugsa um það undanfarið hve heppin ég var að það hafi ekki verið ráðist á mig um daginn í lokuðum kjallara hótelsins sem við gistum á í Vaxjö. Heppin, já er þetta heppni? Hvað er það annað? Ég varð vissulega fyrir áfalli og vonandi á ég ekki eftir að hugsa um þetta í hvert sinn sem ég fer í lokaða kjallara... að það séu ræningjar að verki og ég stoppi þá. En hvað fékk mig til að ganga að þeim þar sem þau voru enn á fullu að ræna og vesenast? Af hverju snéri ég ekki við og náði í hjálp frá hótelstarfsfólki eða lét hringja strax á lögguna. Nei, ég, litla, ljóshærða, íslenska ofurkonan hljóp nánast til þeirra og talaði til þeirra á ensku að þau væru með hjólið mitt á bílnum sínum!!! Hvað í anskotanum var ég að hugsa!!! Nei þetta er ekki neitt vandamál, ég er bara að hugsa upphátt.... Þurfið ekki að kommenta á þetta! Ef, ef, ef, ef,,,,, Af hverju er maður það óheppinn að verða fyrir svona helhveitis veseni. Ókei segjum sem svo að við fáum allt bætt.... er þá bara allt gott og gleymt? Nei ég bara spyr?
Í dag komum við Nína heim úr mjög velheppnaðri ferð, fyrir utan smá "titlingaskít". Við byrjuðum á að fara í íbúð sem Valgerður og Doddi búa í í Köben og vera þar í tvær nætur með mömmu og Þórði, það var mjög gaman. Við gleymdum að hafa samband við Óla Ö.Hl. sem býr þar og ég ætlaði líka að hitta Þórhildi sem ég gleymdi líka. Við fórum ekki í tívolí en við fórum að hitta hafmeyjuna yndisfögru. Alltaf finnst mér hún vera að minnka!!! Það var mjög gaman í Danmörku en mjög dýrt. Á sunnudeginum héldum við þrjú, litla fjölskyldan svo áfram til Svíþjóðar, fórum yfir Öresundbrúnna til Malmö og keyrðum ca 3 tíma inn til Svíþjóðar áður en við vorum komin á eyðibýlið okkar. Við vorum búin að leigja okkur lítinn bústað (raðhús) á annars nánast eyðisvæði. Okkur fannst þetta æðislegt, ekki gsm samband, ekki sjónvarp, ekki tölva, ekki útvarp. Maður þurfti að venjast þessu. En þetta var svo endurnærandi eins og mest getur verið. 100 metrum frá húsinu var útigufa (maður þurfti að kveikja í með viði, okkur mömmu gekk það nú misvel en sem betur fer kom góður skáti okkur til hjálpar og tók okkur í kennslu (bæðevei mamma hann er PRESTUR)), sundvatn (með mold í botninum og fullt af grasi sem fór um fætur manns) og annað vatn þar sem hægt var að veiða silung( Nína skildi ekki neitt í því að hún skyldi ekki hafa veitt neitt, hún verður sko með í veiðiferðum í framtíðinni!). Það var meistarakeppni Íslendinga í Eyðibyggð Svíþjóðar í Kana þessa viku sem við vorum með mömmu og Þórði í bústaðnum. Þetta var mjög skemmtilegt og mesta furða hvað margir æris geta hjálpað manni í sögnum í kana. En það var líka gaman þegar við fórum einn dag til Karlskrona í bæjarleiðangur og Þórður stóð við stöðumælinn og setti 5 krónur í einu í hann.... Einn annan dag fórum við í glerblástursverksmiðju og þar var næstum búið að hrista eina vöruhilluna svo mikið (ónefndur aðili) að þrjár aðrar NÆSTUM HRUNDU.... en það slapp.... Annan dag fórum við svo til Visby þar sem keyptir voru lestar og ferjumiðar og ein ónefnd kona setti lestarmiðana sína á góðan stað á klósetti borgarinnar þannig að hún hefði ástæðu til að fara næsta dag líka í þennan góða bæ, HAHAHAHA , okkur var ekki hlátur í huga þegar við fórum hálfskelkaðar til íslensku konunnar sem við kynntumst í Vissefjorda og báðum hana að hringja út um allt til að finna blessaða lestarmiðana..... Allt svona er broslegt eftir á en á örlagastundu er manni síður en svo hlátur í huga.
En vikan leið eins og ekki neitt væri, við lögðum af stað í tjaldútileiguna okkar í Svíþjóð. Keyrðum eitthvað um 30 km norðar og fundum tjaldsvæði eftir að hafa skoðað amk 3 á leiðinni. Við völdum eitt mjög friðsælt sem lá alveg við vatnið Ásnen. Tjölduðum flotta fjögra manna nýja tjaldinu okkar. Settumst í nýju tjaldstólana okkar við nýja plast tjaldborðið okkar og vorum rosa stolt. Þá komu nokkrir dropar að ofan, við fórum inn, ekki neitt vesen. Nóg pláss. Ég var eitthvað að pjattast með tjaldgólfið í fortjaldinu, vildi helst að fólk færi úr skónum en svo sá ég að það var ekki sniðug hugmynd. Allt í lagi með það, við dunduðum okkur, Nína fór að veiða og Alex að hjóla á "enn"hjólinu sínu. Á þriðjudeginum fórum við í ævintýralega bátsferð, heilan dag á vélbát í grenjandi rigningu og roki, geri aðrir betur í sumarfríinu sínu! Þetta var upplifun það er ekki hægt að segja annað. Á þriðjudeginum byrjaði að rigna, á miðvikudaginn var ekki enn hætt að rigna! Við pökkuðum saman og héldum til Vaxjö á hótel. Já og þið þekkið söguna eftir það!!!
Við fórum svo í íbúð í Þýskalandi á eyjunni Usedom 13.ágúst og fengum algjört dúndur veður. Vorum með tengdamömmu og manni hennar og fórum á hverjum degi á ströndina, að moka, gera kastala, moka pabba í sand, fara út á sjó í öldurnar á vindsænginni. Fá sér öl, pylsu, ís, fara út að borða og bara láta fara vel um sig í flottri íbúð. Þetta var mjög skemmtilegur tími. Alex fór heim á miðvikudegi svo hann gæti mætt í vinnu á fimmtud. en ég og Nína komum heim í dag á laugardegi, fórum með lest.
Já og nú er fríið búið, en þetta er búin að vera yndislegur tími, nú er bara mál að fara að vinna fyrir útgjöldunum.... omg..... og hjólinu.....
Alex tók þátt í annari þríþraut í dag og gekk ekki nógu vel en hann komst í mark og er sáttur, það er fyrir öllu.
Já og digital myndavélin verður komin í lag innan bráðar, það var ekki eins dýrt og okkur grunaði, hjúkketttt.... en bílinn á eftir að komast í lag.... það verður dýrara en við höldum er ég hrædd um, best að kíkja á bílasölur...
Ég ætlaði líka að tala um trúnna en ég geymi það til síðar, með þessum orðum óska ég ykkur góðrar helgar og við verðum í bandi


8 Comments:
Hæ hæ, velkomin heim og takk fyrir síðast :)
Þórður var nú ekki að splæsa 5 krónum í mælinn, hann setti bara 1 krónu í einu !!!
Eitt góðverk á dag kemur skapinu í lag, hjá prestum sem öðrum ha ha ha. Kanski vildi frúin hafa hann í frí í fríinu.
Kveðja mamma
Ég skil ekki af hverju passwordið mitt gengur ekki hér fyrir neðan, vitið þið það?
Mamma Rokk
Þetta hefur verið rammíslensk sjálfsbjargarviðleitni sem fékk þig til þess að rjúka á eftir þjófunum......en svona atvik fá mann svo sannarlega til þess að hugsa...
Mamma getur verið að þú klikkir í anonymous? Þú þarft að vera með í blogger græna punktinn.
já og setja login og publish takkann ekki preview
velkomin heim! Óneitanlega æsilegt sumarfrí, vonandi að þið fáið tjónið bætt.
Kv. Höxter
jjjeess loksins tókst
Nei ég hef alltaf verið með græna punktinn í Blogger og set inn usern. og passw. en það gengur ekki.
Skrifa ummæli
<< Home