Fríhelgi
Hæ dúllurnar mínar.
Ég heyrði í Nínu krúttí á fimmtudaginn og hún er alsæl á Íslandi. Hún sagðist taka sinn hring svona daglega, fara á steinasafnið, til ömmu Lillu og svo bara að hjálpa ömmu Siggu (sem er það skemmtilegasta sem hún gerir, þ.e. að hjálpa, alveg sama hvort það er að þrífa klósett eða baka...) Svo fer hún í pottinn og er bara alsæl. Núna er hún í ferðalagi með ömmu Siggu og Þórði, ég hélt kannski að það yrði leiðinlegt fyrir hana en hún var ánægð með að fara með þeim. Annars hefði hún getað farið til Þóru til Reykjavíkur eða eitthvað. Ég sendi meira segja Systu póst því hún Nína og sonur Systu hann Jói ná svo vel saman, þau hefðu kannski gaman af því að hittast en ég reikna ekki með að eitthvað verði úr því. Svo var Þóra búin að hitta Ásgeir frænda á Leirá í Borgarfirði og Nína má endilega koma til þeirra. Svo er önnur útileiga um næstu helgi en það er ættarmót í fjölskyldu Þórðar, gaman gaman... Svo ætlaði hún Nína að reyna að hitta hana Kim Klöru sem á heima á Akranesi og á líka þýskan pabba, systradóttir Steingríms Ben. Þannig að það er nóg að gera hjá dömunni. Svo líður tíminn og það er nú bara rúm vika eftir hjá henni.....
Gestir okkar eru farnir þetta árið..... það verður sennilega ekki meira um íslandsvinaheimsóknir þetta árið, maður veit samt aldrei. Það var meira stuðið með Önnu Siggu og Ragnari Stefáni og henni Heklu. Mottó dvalar þeirra hjá okkur var TRAUMA, já ég vildi endilega koma þessu að, hvort sem maður trúir því eður ei en við notuðum þetta orð alveg geysilega mikið. Hinn og þessi hefði hlotið trauma í barnæsku og þess vegna ekki viljað spila neitt þar til við tókum upp sex nimmt sem er mjög skemmtilegt og auðvelt spil. Svona var farið létt um orðið trauma sem kom þar af leiðandi fram í annari hverri talaðri setningu, hehehe... og mikið hlegið af því. SVo vil ég nú endilega minnast á geimskotaæfingar eins aðilans sem var hér á heimilinu á þessum tíma en það voru þvílíkar skotæfingar í gangi að viðkomandi lyftist hreinlega úr stólnum með viðeigandi hávaða að nágrönnum okkar fannst nóg um..... hahahaha
Lokaorð þessa pistils míns í dag verða vel valin orð Önnu Siggu þegar hún var búin að borga fyrir matinn á veitingastað..... VIELEN TAG


3 Comments:
Já.. bara mjög/kærlegan dag.. he he he. Flott hjá Önnu :)
Ohh hvað það hefur verið gaman hjá ykkur.. ótrúlega langar mig að koma.. Kannski verður íslandsvinaheimsókn frá mér í vetrarfríinu??!! Aldei að vita..
Over and out
Já þetta var sennilega Þóra ekki satt. Þú veist þú ert alltaf velkomin elskan. Mikinn dag!!!
Já einmitt mikinn dag.. he he. Jú þetta var ég.. ég gleymi bara að kvitta.. Fínt.
Þóra
Skrifa ummæli
<< Home