miðvikudagur, júlí 20, 2005

Atli úri

Frábært gælunafn. Enn og aftur kemur mér eitthvað skemmtilega á óvart í þessu lífi. Ég var að kynnast Íslendingum sem eiga heima í Stadtlohn, ca 20 mín héðan. Andrés og Þórunn, ég hef reyndar aldrei hitt Andrés en hann er frá Akranesi. Ótrúlegt ekki satt, nema hvað við þekkjum auðvitað eitthvað sama fólkið og annað. Þau voru í Kerlingarfjöllum þegar mamma var þar eitt eða tvö sumur að elda ofan í fólkið. Frábært... En þá kom þetta með Helgi úri og Atli úri. Úrsmiðir.... Ég alveg, ha, já úri... (aldrei heyrt þetta) var alveg farin að hugsa já já skemmtilegt að segja það úri, (á þýsku urig= "eldgamaldags"). Minntist á þetta við mömmu, þau sögðust hafa kannast við Helga úra. Mamma alveg já pabbi ykkar var kallaður þetta, Atli úri.

Helga úra

hvernig væri að kalla mig það?

spes amk spes ég segi ekki annað, ég ætla aðeins að sofa á þessu.

Heyrðu annars bara allt gott að frétta, lagði mig eftir vinnu og tölvu og mat í dag, með fína ullarteppið sem Anna Sigga og Ragnar Stefán gáfu okkur. Æðislegt, ég held ég sofi betur undir íslensku loparteppi heldur en útlensku flísteppi, getur það verið?

Í gær fórum við hjónin í heimsókn til vinkonu úr vinnunni, þræl gaman alveg, bara drekka vín, borða grænmeti með ídýfu og hlusta á músík og kjafta, æ lofit.

Við erum að spá í að fara í heimsókn á föstud. fram á laugard.(Alex afmæli) til Ingu Miehm en þau eiga heima nálægt Dusseldorf. Á föstud.kvöld er þessi líka svaka flugeldasýning í Dusseldorf. Ég á bara eftir að fá vinnuplanið hvort það standist að ég geti fengið frí um helgina!!!! Já ótrúlegt en satt.

Myndavélin fór loks í gær í viðgerð, bíð spennt hvað kemur útúr því. Ansans vesen að vera svona óheppinn að einhver skyldi hafa misst starfrænu myndavélina hans Alex. En sjit heppens.

Jæja ég læt þetta duga í bili, orðið allt of langt hjá mér, alveg með munnræpu, bíð spennt eftir myndum frá Önnu Siggu og Ragnari Stefáni á heimasíðu þeirra...... þau flugu heim á þriðjud.nótt.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ekki vissi ég þetta með Helga úra og Atla úra.. he he. Fyndið

Næs.. alltaf gaman að hitta vinkonur og spjalla um allt og ekkert..

Bless Þóra úra.

11:09 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters