þriðjudagur, nóvember 01, 2005

Langt síðan seinast

Hæ hæ og langt síðan seinast.

Við erum búin að vera með heimsókn, mamma og Þórður kíktu í langa helgarreisu. Það var rosalega gaman að fá þau í heimsókn. Þau komu á fimmtudeginum og fóru í dag á þriðjud. og á meðan þau eru búin að vera hér þá hef ég ekki kíkt í tölvuna nánast! Sem er auðvitað ekki slæmt. Nei vitanlega ekki en ég vil nú láta vita af mér.

Hver veit nema þetta hafi verið seinasta heimsókn þeirra til okkar, nei af því að við erum að fara að byggja að Skógarflöt 26 á Akranesi innan skamms. Já við vitum ekki enn hvernig við ætlum að gera þetta. Við ræddu þetta ansi mikið við mömmu og Þórð en Þórður þekkir svo vel til svona mála og Alex var glaður að heyra hans hlið á málinu. Þetta fer allt að skýrast hjá okkur.

Við vorum dugleg að flakka með gestina okkar, fórum til Winterswijk sem er í Hollandi og fórum til Munster og svo fórum við á nýjan stað, til Essen en það er æðisleg borg fyrir Íslendinga að fara að versla. Mamma verslaði mest í Karstadt en það er uppáhaldsbúð minna gesta alla tíð hér í Þýskalandi, já og Real.

Nýjar fréttir: Silli og Mjöll eru að fara að flytja á Akranes, það eru bara allir að flytja á Skagann. Kannski maður búi bara til klúbb á Akranesi? Já þau eru að fara í des þannig að það fer heldur betur að styttast hjá þeim Danmerkurdvölin.

læt þetta duga í bili kæru lesendur, læt betur heyra í mér á morgun en mamma og Þórður takk fyrir komuna, það var rosalega gaman með ykkur......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters