sunnudagur, desember 18, 2005

Aðventukaffi

Við héldum aðventukaffi í dag, fyrsta aðventukaffið á þessari jólaönn. Það var gaman að fá Þórunni og fjölskyldu frá Stadtlohn í smá jólalegt kaffi. Mikið rætt um byggingar og annað slíkt sem gefur að skilja og þeim leist bara vel á. Þetta verður spennandi að fylgja þessu verkefni okkar. Þau fara til Íslands yfir jól og áramót og við hittumst svo í flugvélinni á leiðinni heim.
Við fórum í göngutúr og tókum hundinn Lilly með en það er alltaf drifkraftur fyrir krakkana þegar hundurinn kemur með.

Við fórum í gær til Munster og versluðum nokkrar jólagjafir sem Alex vildi endilega kaupa í Munster. Við vorum ekki alein þar, því getið þið trúað. Nú voru jólamarkaðirnir opnaðir og það koma heilu rúturnar til að skoða og kaupa eitthvað á jólamarkaði í Munster. Hann er með þeim frægustu í Þýskalandi. Fólk kemur frá nálægum sveitarfélögum og frá Hollandi. Já það er eftirsótt að vera í Munsterlandi yfir jólatímann. En þegar það er svona margt fólk þá þarf ég ekki að mæta á svæðið, það er pottþétt. Við náðum að kaupa nokkrar gjafir og jólafötin fyrir Nínu í HM. Svo fórum við að sækja Nínu en hún fékk að gista hjá vinkonu sinni sem við kynntumst í sumarfríinu í Svíþjóð, þau búa í Munster og þær hittast stundum, gaman að halda sambandi eftir sumarfrí finnst mér.

Jæja ég læt þetta duga í bili, njótið nú jólaamstursins, það er ekki mikið eftir. Þessi tími er svo skemmtilegur og fljótur að líða finnst mér.
ykkar jólaHelga

7 Comments:

Blogger Bippi said...

Já tíminn er ótrúlega fljótur að líða....mér finnst aðventan ekki vera síðri en jólin sjálf;)

Talandi um hund.....þið getið nú ekki neitað Nínu um gæludýr þegar að þið verðið flutt í einbýlishúsið á Skaganum;)

1:12 f.h.  
Blogger Helga said...

Það verður amk erfiðara að neita henni um gæludýr í eigin húsnæði heldur en í leiguhúsnæði. Bara spurning hvort mamman yfirbugi hundafælni sína. Mamma mín er líka svo hrædd við öll húsdýr nema hesta að það verður vandamál þegar hún kemur í heimsókn. EN við sjáum til. Allt opið enn.

7:44 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Getið þið ekki smíðað hundakofa fyrir hundinn ef þið fáið ykkur hund?
Svo er líka hægt að loka hann inni í þvottahúsinu þegar ég kem í heimsókn.

Ég get trúað að gaman sé að fara á jólamarkaðinn í Munster :).

Er vinkonan dóttir prestsins sem er skáti?

11:26 f.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Var það ekki Guðríður, dóttir prestsins? :þ
Alex ætti nú ekki að vera í vandræðum með að teikna og smíða einn hundakofa... smíðar kannski húsið bara í míní-útgáfu ;)

12:33 e.h.  
Blogger Helga said...

Jú rétt er það móðir kær, Karen dóttir prestsins sem er skáti og svona líka ægilega hress og kátur, alltaf gaman að koma til þeirra í heimsókn, fá smollkúkkís og kaffi.

Þetta með hundinn, við skulum ekki hafa hátt um það, kannski gleymist þetta bara.....

Á samt ekki von á því, sama hvað ég reyni að skipta um umræðuefni!

1:24 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég las þetta sem smokkkúlu ís :)

Gleðileg jól,
kv Systa

8:45 e.h.  
Blogger Helga said...

Gott innlegg Systa, sömuleiðis gleðileg jól ykkur öllum.

8:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters