miðvikudagur, janúar 11, 2006

Long time no see

Hæ hæ kæru vinir og vandamenn,

við erum öll komin heil á húfi heim til okkar, síðasti fjölskyldumeðlimurinn skilaði sér í kotið seinnipartinn í gær en þá kom Alex fyrst heim frá Brussel. Hann var dauðþreyttur þessi elska en byrjaði samt strax á því að laga uppþvottavélina sem er búin að vera eitthvað stíf við mig og hefur ekki viljað standa við sín verk. Ég gafst fljótlega upp og er búin að þvo í höndum það sem notað hefur verið, sem hefur að því leiti verið haldið í algjöru lágmarki. Ótrúlegt hvað það er erfitt þegar svona tæki klikka á heimilinu.

Annars var rosalega gaman á Íslandi eins og það er alltaf, maður fer í hálfgert þunglyndi eftir heimkomu aftur þótt það hafi glatt mitt litla hjarta alveg geysilega þegar þrjár vinnuvinkonur mínar hringdu og voru svo glaðar að ég væri komin heim, hvort við ættum ekki að hittast í morgunmat, yndislegt að eiga góða vini. Svona er maður heppinn í lífinu. En ég hafði mjög gaman af því að hitta alla fjölskylduna heima hjá mömmu strax á mánudeginum eftir að ég kom og svo á hverjum degi prógramm að fara í heimsókn eða fá heimsókn. Takk fyrir mig allir saman og ég hlakka til að hitta ykkur öll vonandi um ´páskana þegar við komum aftur í heimsókn.

Nína stendur í ströngu þessa dagana. Það er einkunnagjöf 27.jan og þrjú próf á þremur skóladögum núna, á morgun landafræði, á föstud. enska og á mánud. reikningur. Allt mikið að læra og það í fyrstu vikunni eftir tveggja vikna frí, maður veltir fyrir sér hvort kennarar fari fram á að þau hafi lært í fríinu sínu. Það dettur mér ekki til hugar að gera. Alveg er maður að fá nóg af þessu kerfi. Nína var að læra með einni bekkjarvinkonu sinni í dag og þær voru svo duglegar að spyrja hvor aðra, alveg eins og fullorðnar næstum því, vonandi var þetta nóg?

Jæja bið að heilsa í bili, við sitjum hér í rigningunni eins og var allan tímann nánast á Íslandi.

Verið hress og ekkert stress
ykkar Helga

2 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Ég hlakka til að sjá ykkur um páskana, en ég var að spá hvort það væri ekki þjóðráð að fara að athuga og jafnvel panta flug?

Vonandi gengur Nínu vel í prófunum :)
Kærar kveðjur

11:48 f.h.  
Blogger Bippi said...

Það var frábært að sjá aðeins framan í þig Helga mín. Ég get ekki beðið eftir að þú flytjir á Skagann;)

5:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters