fimmtudagur, mars 23, 2006

Fréttir

Það er það nýjasta hjá Nínu að horfa á kvöldfréttir í sjónvarpinu. Mér finnst það mjög gott mál að hún fylgist með heimsmálum og því sem er að gerast í landinu sem við búum í. Stundum fæ ég samt fyrir hjartað því það ætti í raun að banna börnum að horfa á margar myndir sem sýndar eru, þá erum við að tala um fréttatíma kl.19 eða kl.20, eftir því hvenær við erum búin að borða. Hún hefur það mjög huggulegt á meðan hún horfir á fréttirnar, fær sér kex og skríður undir teppi og kúrar hjá mömmu eða pabba.

Nú eru Þjóðverjar aldeilis ánægðir með sig þar sem landsliðið vann USA 4:1 í gær. Þeir eru búnir að verða fyrir svo mikilli gagnrýni undanfarið útaf tapinu nýverið 1:4. Sumir hafa meira segja viljað að Klinsmann segði af sér. En sem betur fer gekk það ekki það langt að hann hætti. Hann býr í USA og flýgur á milli æfinga heim til sín, það er líka mjög gangrýnt af mörgum, hann eigi að vera hér og fylgjast með fótboltanum til að geta betur valið í landsliðið eins og okkur sé ekki sama hvað hann gerir í frítíma sínum?

3 Comments:

Blogger Bippi said...

Já, ég er alveg sannfærð um að margar af myndunum sem sýndar eru í fréttunum eru verri en ýmsar "bannaðar" myndir....:/

En krakkar hafa samt gott af því að horfa á fréttirnara til þess að vita hvað er að gerast í kring um þau!!!;)

9:29 f.h.  
Blogger Helga said...

Já það er satt, það er mikilvægt að fylgjast með því sem er að gerast. Ég mætti sjálf taka mig verulega á í þeim efnunum. Ég fylgist til dæmis ekki neitt með fréttum frá Íslandi. Þrátt fyrir að geta horft á fréttir í sjónvarpinu í stofunni, í gegnum tölvuna. Meira að segja þegar ég horfi á fréttirnar hér, þá oft man ég ekki nokkurn skapaðan hlut sem verið var að segja frá. Er þetta eðlilegt?

Amma Lilla er sú fréttameðvirkasta sem ég þekki. Hún er nánast hlustandi á fréttir allan liðlangann daginn. Ef ekki íslenskar þá á BBC eða hvað það nú er sem hún horfir á. BEtra en að gera ekki neitt og heldur manni vitsmunalega á réttri hillu.

5:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það hefur nú aldrei þótt neitt stórafrek í fótboltaheiminum að vinna USA..........en samt áfram Klinsi

kv. Lú

10:42 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters