mánudagur, mars 20, 2006

helgarferð

Hæ hæ
Þetta var nú meira vesenið á blogginu á föstudaginn, ég var alveg farin að örvænta útaf því að maður komst ekki inn á síðuna. Eins og búið væri að loka fyrir hana. Ferlega skrýtið. Á sunnud. þegar ég loks komst í tölvu þá sá ég að búið var að opna fyrir hana aftur, sem betur fer!!!

Það var gaman að heimsækja fjölskyldu Alex um helgina, við gistum hjá pabba hans en hann býr nálægt Frankfurt. Við tókum því rólega og skelltum okkur í þessa líka frábæru sundlaug á laugardeginum, fórum þar í gufu og Alex og Nína skelltu sér í frábærar rennibrautir, gaman gaman. Mér nægði að horfa á þau, maginn spenntist við það eitt!! Svona er maður viðkvæmur, sei, sei, nei....

Mikið var rætt um byggingarplön okkar, það hafa allir skoðun á því sem við tökum okkur fyrir hendur, sem er bara gott mál, betra en að öllum væri sama um okkur!! Þetta á eftir að verða æsispennandi, hvenær sem þetta byrjar svosem. Það var frestað að afhenda lóðirnar því þeir náðu ekki að undirbúa nóg vegna veðurs, eða eitthvað. Amk er ekki búið að afhenda ennþá. Hver og einn mundi byggja öðruvísi og eflaust er það þannig að maður sjálfur mundi byggja í annað sinn gjörsamlega öðruvísi heldur en í fyrsta sinn. Það er samt mjög jákvætt að hafa búið í húsi áður en maður byggir, margt sem hefur áhrif á það hvernig maður planar. Það eru settar ákveðnar skorður með byggingarreglugerð en maður hefur samt mikið val. Alex er alveg að fara á límingunum yfir því að sjá loksins lóðina, kannski hann tjaldi bara þar þegar við komum um páskana til að finna hvaða tilfinning er þar í jörðinni!!! Nei nei bara djók. Við erum alveg búin að ákveða það að ætla ekki að flytja aftur... komin með nóg af því í bili!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

það eru aldeilis spennandi tímar framundan hjá ykkur, nýtt barn og nýtt hús og flutningar.

Gangi ykkur voða vel, kveðja úr Lystrup

3:44 e.h.  
Blogger Helga said...

Er ekki alltaf sagt nýtt hús, ný lukka.... þar með barn í okkar tilfelli, bara aðeins í annari röð því barnið kemur á undan húsinu.

En já heldur betur spennandi, ég er mjög spennt að flytja til Akraness aftur, eftir rúma 10 ára fjarveru.

8:53 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ég var einmitt að spá í þetta í sambandi við síðuna þína....búin að reyna nokkrum sinnum að komast inn á hana.....eins gott að allt sé komið í lag.....

....spennandi bygginaplön í gangi...komið þið ekki með teikningar hingað um Páskana?? ;)

12:24 f.h.  
Blogger Helga said...

Jú við komum með teikningarnar, eiginlega ætlaði ég að koma með þær í janúar en gleymdi þeim! Svona er ég...

Það verður athyglisvert að sjá viðbrögðin.

1:04 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters