Mamma á afmæli í dag
Hún mamma mín, Sigríður Kristín Óladóttir, fædd og uppalin á Akranesi þann 22.3.51 er 55 ára í dag. Ég óska þér innilega til hamingju með daginn elsku mamma og vona að þessi dagur, sem og aðrir dagar eigi eftir að verða ánægjulegir í faðmi fjölskyldu, vina, nemenda, samstarfsfólks og góðkunningja. Vona að guð og gæfan eigi eftir að fylgja þér á þinni lífsbraut og að þér takist það sem þú tekur þér fyrir hendur. Að þú haldir þinni jákvæðu lund og haldir áfram að vera svona þakklát fyrir það sem þú hefur og þér er veitt í lífinu.
Þú hefur upplifað margt misgott en alltaf staðið uppi sem sigurvegari. Mamma vertu þú sjálf og það verður gaman að fylgja þér um ókomin ár.
Þú ætlar að vera með smá veislu á laugardaginn, það er verst að ég kemst ekki. Það á eftir að verða rosa flott hjá þér og svakalegt stuð eins og vanalega þegar fjölskyldan hittist á góðri stund. Góða skemmtun.
Elsku mamma óska þér til hamingju með áfangann og takk fyrir allt.
Smá myndaröð af afmælisbarninu fylgir.....


4 Comments:
Til hamingju með daginn elsku Sigga!!!
Ó mæ g. þetta er allt of mikil lofræða hjá þér Helga mín. En ástarþakkir fyrir góðar kveðjur og flott vefkort sem ég fékk frá ykkur í skólann. Ég þakka líka kærlega fyrir blómin sem biðu mín þegar ég skrapp heim í hádeginu.
Takk Heiðrún mín!
Jú, ég eiginlega viss um að þetta er ég, Þórður er öruggur á því ;)
Velkomið mín kæra, þú átt þetta svo sannarlega skilið.
Bestu kveðjur
Helga
Til hamingju með daginn Sigga.
Það getur ekki verið að þú sért 55..einhver hlýtur að hafa ruglast í talningunni.
Skrifa ummæli
<< Home