mánudagur, mars 13, 2006

Heilalínurit í fínu lagi

Já þá er hún útskrifuð sem læknuð af flogaveikinni. Við fórum í heilalínurit í dag og það gekk svona vel að hún þarf ekki að koma aftur. Nína greindist með störuflog þegar hún var fimm ára og þurfti að fara á lyf til að ráða við það. En hún hætti á lyfjunum í jan í fyrra og það hefur ekki neitt komið upp á síðan þá. Glæsilegt ekki satt.

Við gerðum okkur glaðan dag og skruppum til Munster og fórum í verslunarleiðangur, ég fór í H&M og verslaði óléttuboli. Með Nínu alveg á tauginni, það er ekki það skemmtilegasta sem hún gerir að fara í verslunarleiðangur... Það bætti nú smá upp að fara á McD að borða á eftir.

5 Comments:

Blogger Bippi said...

Flott að hún sé læknuð af flogaveikinni, það er svo gott fyrir hana að þurfa ekki að taka þessi sterku lyf sem gera mann þreyttan og syfjaðan.

12:37 f.h.  
Blogger Helga said...

Já bara miklar aukaverkanir yfir höfuð, hvernig er með þig?

7:46 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

krökkum finnst nú ekki það skemmtilegasta að fara í verslunarleiðangur en McD er alltaf ágæt verðlaun.
Margrét Saga biður að heilsa Nínu.

kveðja, Christel

11:46 f.h.  
Blogger Helga said...

Takk fyrir það Christel, skila því til Nínu, við vorum einmitt að skoða myndirnar hjá ykkur á Barnalandi um daginn.

Nína biður örugglega líka að heilsa :-)

1:58 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Frábært að vera laus við flogaveikina, til hamingju með það elskurnar :)

Nína hefur pottþétt ekki úr móðuætt að vera lítið fyrir verslunarleiðangra, eða hvað?

10:13 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters