laugardagur, mars 11, 2006

Róleg helgi

Voða notarlegt hjá okkur fjölskyldunni að hafa það rólegt um helgina. Á föstudaginn fór NÍna með til Munster en ég var að mæta í síðasta kennslutímann í náttúruskólanum mínum. Nína fór í heimsókn til prestsdótturinnar sem við kynntumst í Svíþjóðarfríinu okkar. Það var sorglegt í skólanum, ég á eftir að sakna skólafélaganna og kennarans og þess að mæta þar á hverjum föstudegi. En það verður spennandi hvernig þeirri fyrstu úr bekknum sem mætir í próf gengur núna um miðjan mánuðinn. Við hin förum öll saman í maí. Þannig að núna er það eina sem gildir að læra og læra og vona það besta. Seinni tíma vandamál.

Nína hafði gaman af því að fara í heimsókn til Karen og þær ætla að vera duglegar að skrifast á og hittast vonandi áfram, það er nú ekki langt að fara í lest, þarf ekki einu sinni að skipta um lest á þessari leið, betra gæti það ekki verið.....

Í kvöld fór ég á svona uppistand, það var ung kona sem var að segja brandara, eða leika einstand eða hvað maður kallar svona..... Fór með kvennaklúbbnum sem ég er í og það var þræl gaman. Það er svo gott fyrir mann að komast aðeins út á meðal fólks og rabba um eitthvað annað en þetta daglega og skemmta sér. Ekki það að það sé ekki gaman að vera heima hjá sér með fjölskyldu sinni en það er líka svo yndislegt að koma heim að kvöldi loknu eftir ánægjulega kvöldstund með vinum.

Var að hugsa um að setja í eina kleinu uppskrift, mamma hvernig var það getur þú ekki laumað til mín betri kleinuuppskriftinni þinni???

Góða helgi

4 Comments:

Blogger Bippi said...

Þú talar um að það hafi verið rólegt hjá ykkur en ég get ekki betur séð en að það hafi nú bara verið nóg um að vera;)

En ég held að þetta sé nú bara kallað uppistand á okkar ástkæra.....

Vonandi líður þér vel Helga mín;)

1:04 f.h.  
Blogger Helga said...

Takk Heiðrún mín, ég hef það ljómandi gott, mikið um að vera, spörk og hreyfingar, komin langt á 23.viku.

7:24 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Gsman að heyra í þér í gær Helga mín, flott þetta með að leika "einstand" af hverju ekki einstand eins og uppistand?

Þetta minnir á Spaugstofuna á laugardaginn þegar snillingarnir fóru á kostum m.a. í þýskunni. Þar töluðu þeir um únterskúten og stjernskrúendræver, skrifað eftir framburði. Það þarf líklega ekki að þýða þetta?!

5:49 e.h.  
Blogger Helga said...

Mamma ég er nú svo treg að ég skil ekki þessa þýsk-útlensku hjá spaugstofunni.

Inga ég bið að heilsa skvísunum um helgina, við förum til Frankfurt til tengdó. Ég er alveg óð í að fara í Ikea við tækifæri, kannski laugard.næstu viku eða frekar einhvern morgunin á virkum degi? Það er nú léttir fyrir þig að Seydi sé kominn með prófið aftur, híhí.... Alex þarf að skila sínu við tækifæri....

8:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters