Spagetti Bolognese
Nína sá um kvöldmatinn í kvöld. Við foreldrarnir vorum í seinna lagi að mæta heim í kvöldmatinn og ég var búin að biðja Nínu um að sjá um hakk og spagetti. Hún sagði að það væri nú lítið mál, sósan pakkasósa með leiðbeiningum aftaná. Hún lauk þessu verkefni með prýði og bragðaðist maturinn ljómandi vel hjá henni. Hún á eftir að verða góð í matreiðslu þegar að því kemur. Enda ekki langt að sækja, til mín vissulega.... mamma ekki verða sár.... ég á þetta til þín að sækja! Smá grín. Nei en það er ekki alltaf þannig að börnum þyki það skemmtilegt sem foreldrunum þykir skemmtilegt. Nínu finnst gaman að vera í eldhúsinu og að bagsa eitthvað þar, baka vöflur, ömmusnúða (ekki gersnúða heldur lyftiduftssnúða), elda og vesenast. Gaman að þessu....
Við förum á morgun til tengdó og verðum yfir helgina. Það verður gaman, vonandi snjóar ekki mikið á leiðinni, það er með eindæmum leiðinlegt að keyra á hraðbrautinni þegar það snjóar. Við verðum í sambandi, óska ykkur góðrar helgar, ykkar Helga


3 Comments:
Mér þykir Nína aldeilis dugleg. Ég sagði Albert (sem er einu ári yngri en Nína) að redda sér sjálfur með núðlur sem honum langaði í. Sagði honum að sitja þær í pott og kveikja undir. Eftir smá stund gaus upp þessi ægilega fíla. Þá gleymdi ég víst að segja honum að sitja líka vatn í pottinn! Já það er ekki öllum gefið að vera góðir í eldhúsinu.
Góða helgi ljúfust
Ástarkveðjur frá Ástralíu
Krúttaralegt Krissý!, en ég segi nú bara einu sinni enn: Maður getur ekki verið fullkominn á öllum sviðum ;)
Helga mín, ég er ekki sár, sei sei nei, ég sé að Nína er alveg eins og ég var fyrir nokkrum tugum ára. Munurinn á okkur er ef til vill sá, að ég hringdi í ömmu Gyðu til að fá uppskriftir, en nú er þetta allt á pökkunum :) og kanski eru krakkar í dag öruggari með sig, hvað segið þið?
Fyrstu skrefin eru ekki auðveld í eldhúsinu, þetta getur samt allt komið Krissý, bara ekki gefast upp ef þeim finnst þetta skemmtilegt. Ég er oft ekki ánægð með útlit eldhússins þegar hún hefur lokið sér af en það batnar líka.
Já kannski meira sjálfsöryggi, spyrja ekki um allt eins og við? Veit samt ekki. En þau eru líka ekki eins þessar dósir!
Skrifa ummæli
<< Home