föstudagur, maí 19, 2006

Heilpraktiker = græðari

Jæja þá eru loksins prófin búin. Ég var í þrjá daga í burtu, tvær nætur til að taka þessi próf til að fá starfsréttindi sem Heilpraktiker. Fyrra prófið var skriflegt og það seinna munnlegt, ég stóðst þessi próf og er bara ansi ánægð með mig. Það voru 40 % sem náðu ekki sem er nú bara ansi mikið, það var búið að hræða okkur með því að það væru 80% sem næðu ekki og ég reiknaði eiginlega með því að ná ekki þannig að ég er mjög ánægð með niðurstöðuna.

En að Eurovision undankeppninni í gær, þetta voru nú óvænt úrslit fyrir mig. Ég átti reyndar ekki von á að Silvía kæmist áfram, ég er ekki hrifin af þessum karakter og þessum ýkta leikaraskap í svona keppni. Ég er þeirrar skoðunnar að maður eigi að taka þetta alvarlega og ekki gera skrípaleik úr þessu milljón króna dæmi fyrir land og þjóð. En það er nú bara mín skoðun. Ég var mjög hissa á að Finnland, Tyrkland, Armenía, Bosnía og fleiri kæmust áfram. Ég var ánægð með Írland, Svíþjóð og hefði viljað sjá Holland, Belgíu og sundbolavinkonurnar sem voru að herma eftir Abba. Alex leist ekki neitt á þetta og treystir sér ekki til að horfa á keppnina á laugardaginn, hann fer þá bara snemma að sofa vinurinn.... fær eitthvað náttúrulegt svefnlyf í kvölddrykkinn sinn svo hann fari ekki að fikta í fjarstýringunni í miðri keppninni.... Ég ætla hins vegar að kíkja í saumó á laugard. og koma mér svo tímanlega í stellingar fyrir keppnina á laugard.kvöld með popp í annari og gos í hinni!

En í dag er rigning úti og það passar fínt fyrir verkefni dagsins, þrif, þrif og þrif.... enda kominn tími til eftir læri, læri, lærivesen.... llæt þetta duga í bili kæru félagar, eigið góða helgi.....

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með prófin -frábært.
Þetta er að aukast mikið hér á Íslandi, þá þessar óhefðbundnu lækningar-gott mál.
GBB

10:17 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju Helga mín, glæsilegur árangur :)
kv Systa

10:23 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með áfangann Helga mín.

Við höfum greinilega ekki sömu skoðun á Evróvision lögum eins og þú hefur kannski séð á evróvisionfærslunni minn frá í gær á www.bippi.net

12:16 e.h.  
Blogger Bippi said...

Til hamingju með að vera orðin græðari!!!,O)

1:14 e.h.  
Blogger Helga said...

Takk Takk, þetta er nú bara byrjunin en samt viss áfangi útaf fyrir sig.

Það er bara gaman að allir hafi mismunandi skoðanir á Eurovision, það er einmitt svo spennandi við þetta.

7:40 e.h.  
Blogger Sigga said...

Til hamingju með að hafa náð prófunm þínum.

11:37 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sorrý að ég skildi fíkta í fjárstýringunni...
...en þá var keppninn reyndar búinn.
Til hamingju Helga

9:56 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters