Reiðtími í dag og sól í heiði
Alveg yndislegt veðrið þessa dagana og ekki er spáin amaleg. Ég ætla nú ekki að vera að monta mig neitt fyrir framan ykkur á Íslandi en mér finnst maður alveg eiga þetta skilið miðað við óvenju harðan vetur, eflaust einhverjir sem finnast ég gróf í orðavali. En maður er ekki í útlöndum til að lifa í sama kuldanum og á Íslandi! Eða hvað??
Nína var í reiðtíma í dag, alltaf jafn gaman hjá henni á þriðjudögum. Eftir reiðtímann bauð einn hestaeigandinn, kona, Nínu svo að fara á hestbak á hestinum hennar og gerði Nína það. Hafði gaman af og sagði að það væri öðruvísi að vera á öðrum hestum heldur en skólahestunum. Þetta eru allt íslenskir hestar en þeir eru jú líka misjafnir eins og þeir eru margir. Segi ég sem hef ekki hundsvit á hestum! Þeim finnst nú alltaf jafn skondið að þekkja Íslending sem kann ekki á hesta! Finnst eins og það hljóti að vera rosalega sjaldgæft, öllum sem eru þarna með hest og koma á hestabúgarðinn í reiðtíma. Hvað á maður að segja? Á aðfaranótt mánudags fæddist folald, ótrúlega fallegt, rauðleitt á feld og það er ein önnur meri alveg að fara að eiga, nei ekki ég, ég er ekki fyrr en í júlí og ég er ekki meri!
Sólarkveðjur úr Coesfeld
Helga


3 Comments:
Helga!
hryssur kasta- ein sem hefur ægilega mikið vit á hestum ha ha
kv GBB
Ég biðst velvirðingar á því ef ég hef snert viðkvæma strengi í lesendum mínum, híhíhí.... en það er greinilegt að ég hef ekki neitt vit á dýrum.
Við Lúlli værum til í að vera komin í góða veðrið til ykkar.
GBB
Skrifa ummæli
<< Home