Brasilía vann 1:0
Ekki það að það komist ekkert annað að hjá mér en fótbolti þessa dagana.
Við vorum á foreldrafundi í kvöld, hann var haldinn á krá hér í bæ, við sátum úti í 30 stiga hita og mér var heitt. Það var verið að skipuleggja grillkvöld sem haldið verður í lok ágúst þegar skólinn er löngu byrjaður aftur. Það verður gaman. Svona finnst mér ótrúlega skemmtilegt og það skapast skemmtileg stemming í hópnum við svona hittinga. Verst að Alex verður í Rússlandi að setja upp sýningu, en við förum þá með nýja manninn okkar með okkur, litla manninn.....
Vonandi kólnar í nótt, það er ólíft uppi þrátt fyrir að allt hafi verið lokað í allan dag, omg, en þetta er svona þegar maður er með svefnherbergin uppi......


2 Comments:
Sæl Helga. Er einmitt á vakt núna sem betur fer því það er 8°C og rigningasuddi. Vöknuðum í morgun í slagveðursrigningu. Ojojojojoj. Bara ömurlegt og það er ekki sjáanlegar neinar breytingar. Með kveðju af klakanum Rannveig
Það er bara óskandi að það haldist þurrt á 17.júní hjá ykkur. Ekki beint spennandi að fara í skrúðgöngu í mígandi rigningu.
Sumar farðu nú að láta sjá þig á Íslandi!!!
Skrifa ummæli
<< Home